 Mynd: Bjsv. Strönd/Björn Ingi
Fréttir | 05. febrúar 2012 - kl. 22:19
Félagar úr Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd og Björgunarsveitinni Húnum úr Húnaþingi vestra komu saman í íþróttahúsinu á Skagaströnd í gær og æfðu klifur. Alls mættu tíu manns frá sveitunum tveimur sem skemmtu sér í klifurveggnum í um tvær klukkustundir.
|
 |
 Frá Skagaströnd
Fréttir | 05. febrúar 2012 - kl. 21:49
Á degi leikskólans sem haldinn verður á morgun, 6. febrúar, ætla nemendur og kennarar leikskólans Barnabóls á Skagaströnd að opna listsýningu í útibúi Landsbankans með fjölbreyttum verkum eftir nemendur á aldrinum 1-6 ára. Einnig verður farið á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem afhent verður plakat með gullkornum leikskólanemenda.
|
 |
Fréttir | 05. febrúar 2012 - kl. 21:47
Næstkomandi þriðjudagskvöld kemur leikstjórinn Jakob S. Jónsson til Blönduóss. Allir sem hafa áhuga á að starfa með félaginu er hvattir til að mæta með góða skapið í Félagsheimilið kl. 20:00 þriðjudaginn 7. febrúar.
|
 |
Fréttir | 04. febrúar 2012 - kl. 17:35
Ungmennafélagið Hvöt mun halda aðalfundi sína á næstunni en um er að ræða fundi hjá aðalstjórn, knattspyrnudeild og sunddeild. Ljóst er að einhverjir stjórnarmenn munu hætta og því er hér auglýst eftir fólki í aðalstjórn og stjórn knattspyrnudeildar.
|
Fréttir | 04. febrúar 2012 - kl. 09:28
Í tilefni af 100 ára afmæli USAH verður haldin ljósmyndasýning í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi þann 31. mars n.k. Því biðlar nefnd vegna sýningarinnar til Húnvetninga nær og fjær um myndir úr starfi sambandsins undanfarin ár.
|
 Verðlaunahafar getraunaleiksins þ.e. þeir sem áttu heimangengt. Ljósm: Óli Ben.
Fréttir | 03. febrúar 2012 - kl. 12:33
Uppskeruhátíð fyrir vorleik Getrauna Hvatar var haldin í gær í norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar og var mæting með ágætum. Dregist hafði nokkuð að halda uppskeruhátíðina en hún markaði einnig upphaf að næsta leik sem hefst nú um helgina.
|
Fréttir | 03. febrúar 2012 - kl. 12:20
Lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri fundu 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun á kannabis. Eyðibýlið hefur ekki verið í ábúð í mörg ár og eigendur fluttir á brott. Málið er í rannsókn.
|
Fréttir | 03. febrúar 2012 - kl. 07:26
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins mánudaginn 6. febrúar næstkomandi. Einkunnarorð dagsins eru – Við bjóðum góðan dag alla daga -. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
|
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 21:05
Mánaðarlegur hittingur hjá brottfluttum húnvetnskum konum er um helgina. Hittast þær í Perlunni og er laugardaginn 4. febrúar engin undantekning þar á. Þær hittast kl. 12:00 og verður eflaust frá mörgu að segja svona rétt eftir öll þorrablótin.
|
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 20:56
Menningar- og fegrunarnefnd Blönduósbæjar hefur ákveðið að auglýsa á næstu dögum stöðu viðburðarstjóra Húnavöku. Ákveðið hefur verið að halda Húnavöku helgina 20.-22. júlí í sumar. Nefndin leggur jafnframt til að Húnavökubæklingurinn verði útvíkkaður þannig að hann nýtist fyrir allt árið sem kynning á svæðinu.
|
 Blönduós
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 20:38
Í ljósi hækkana á viðhaldsgjaldi götulýsingar hefur RARIK ákveðið að bjóða veghöldurum, sem þess óska, að yfirtaka rekstur götuljósa og sjá um hann sjálfir. Viðhaldsgjald götulýsingar hækkað um 7,5% um síðustu áramót um leið og verðskrá RARIK fyrir dreifingu hækkaði. Til viðbótar þeirri hækkun hefur verið ákveðið að hækka viðhaldsgjaldið aftur um 7,5% þann 1. júlí í sumar.
|
Tilkynningar | 02. febrúar 2012 - kl. 20:33
Tilkynning frá stjórn Markviss
Skotfélagið Markviss auglýsir aðalfund sinn sem haldinn verður að Skúlabraut 9, sunnudaginn 12. febrúar og hefst kl. 14:00. Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 20:31
Sunnudaginn 5. febrúar næstkomandi klukkan 14 stendur æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista fyrir töltmóti barna og unglinga í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í pollaflokki, barnaflokki og unglingaflokki.
|
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 20:30
Í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð Björgunarsveitarinnar Húna vegna erlendra ferðamanna sem lent höfðu í vandræðum við Hvítserk og komust ekki til baka á jeppa sínum. Björgunarsveitarmenn úr Húnum mættu og svæðið og gekk vel að koma ferðamönnunum aftur upp á þjóðveginn og gátu þeir haldið för sinni áfram.
|