Miðvikudagurinn
8. september 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
September 2010
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti
Kjalfell ehf - Netverslun
Veðurstofa Íslands
Blönduós 11:00 NV 2  9°C
Hraun á Ska 11:00 NNV 2  9°C
Reykir í Hr 11:00 N 6  9°C
Reykjavíkur 11:00 ANA 8  15°C
Akureyri - 11:00 A 3  13°C
Egilsstaðaf 11:00 S 1  11°C
Haugur 11:00 NNV 6  8°C
Skagatá 11:00 NNV 2  9°C
Holtavörðuh 11:00 N 6  7°C
Þverárfjall 11:00 A 1  12°C
Laxárdalshe 11:00 ANA 7  7°C
Brúsastaðir 11:00 NNV 2  10°C
Vegagerðin
Holtav.h. 11:20 N 6  7 °C
Laxárdalsh 11:20 ANA 8  7 °C
Vatnsskarð 11:20 A 2  11 °C
Þverárfjall 11:20 NA 2  12 °C
Kjalarnes 11:20 A 9  16 °C
Hafnarfjall 11:20 NNA 4  13 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
03. september 2010
Septembernöldur
Sumri hallar hausta fer, segir einhversstaðar og nú er sá tími kominn, haustið er að ganga í garð og sumarið að kveðja. Ekki alveg minn tími, en góður tími samt. Þetta er tími kertaljósa á lognkyrrum, rökkvuðum kvöldum. Tímamót hjá börnunum okkar, sem setjast nú á skólabekk og sum hver í fyrsta skipti.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Pistill tekinn af heimasíðu Hvatar
25. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
12. ágúst 2010
Eftir Vigni Hafþórsson
10. ágúst 2010
Eftir Þórð M. Jónsson og Finnboga Vikar
08. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
09. júlí 2010
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
07. júlí 2010

tilk_web.gif


Senda Húnahorninu pistil í tölvupósti

 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 779 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
10:11 25. ág. 2010   3ji flokkur karla í knattspyrnu leikur úrslitaleik á Blönduósvelli
Pistill tekinn af heimasíðu Hvatar
Þá er komið að því hjá strákunum í 11 manna liðinu að spila við Fjarðarbyggð þann 28.08.2010 á Blönduóssvelli. Þarna verður um hreinan úrslitaleik í riðlinum að ræða þar sem við unnum Völsung á heimavelli í síðustu viku.
10:15 12. ág. 2010   Stöð 2 í áróðri fyrir kvótakerfið
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
Undanfarna daga hefur fréttastofa Stöðvar 2 haldið uppi hörðum vörum fyrir kvótakerfið með umfjöllun sinni um úthafrækjuveiðar sem verða öllum frjálsar á næsta fiskveiðiári. Kannski er það ekki ætlun fréttamannanna sem í hlut eiga, en slíkur er málflutningurinn að önnur skýring er ekki nærtækari.
12:18 10. ág. 2010   Það er smá kántrý í öllum
Eftir Vigni Hafþórsson
Sumarið er tími úti- og bæjarhátíða á Íslandi. Við ferðumst mörg hornanna á milli til þess að njóta landsins gæða og gestrisni landsbyggðarinnar. Stærstu hátíðarnar standa yfir venju samkvæmt um verslunarmannahelgina, sem markar í hugum margra lok ferðarsumarsins. En í sveitarfélaginu Skagaströnd, er ár hvert haldin merk hátíð, sem á að höfða til þeirra sem vilja framlengja ferðasumarið um ögn. En sú hátíð er hin margrómaða hátíð, Kántrýdagar.
22:33 08. ág. 2010   Grjótkast úr glerkastala Björns Vals Gíslasonar
Eftir Þórð M. Jónsson og Finnboga Vikar
Gagnrýni Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG og skipstjóra í leyfi á Alþingi frá Brim hf. á skipun Runólfs Ágústssonar í starf umboðsmanns skuldara er eftirtektarverð í meira lagi. Skipun Runólfs væri hluti af gamla valdatímanum, sem Björn Valur sagðist ekki vilja tilheyra.
20:22 20. júl. 2010   Athafnaleysi árum saman veldur innköllun kvóta
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að gefa veiðar frjálsar á úthafsrækju næsta fiskveiðiár. Það er rétt sem útvegsmenn halda fram að slíkt sé óbein innköllun kvótans. En það er vegna þess að útvegsmenn hafa ekki árum saman nýtt útgefnar veiðiheimildir. Við þær aðstæður ber ráðherra samkvæmt gildandi lögum að heimila frjálsar veiðar og kvótaúthlutunin fellur sjálfkrafa niður.
12:46 09. júl. 2010   Fréttaskýring
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
Vegna fundar skipulags-, byggingar- og veitunefndar 31. maí 2010 dagskrárliður 4, vegna kaffihússins Ljón norðursins og öllum er opið á netinu sem áhuga hafa, skal eftirfarandi tekið fram.
22:22 07. júl. 2010   Meiri verðbólga, meira kaupmáttarhrun
Efnahagshrunið, sem varð 2008, er vissulega mikið og þungbært áfall fyrir þjóðina, en það er ekkert einsdæmi. Áður hafa orðið stór áföll sem landsmenn urðu að axla og vinna sig út úr með þolinmæði og þrautseiglu. Að þessu sinni eru óvenjulega hörð átök um það hverjir eigi að greiða kostnaðinn af hruninu.
12:36 07. júl. 2010   Lækkar lurkakyndingin húshitunarkostnaðinn?
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
Það liggur fyrir að ekki eru uppi áform um að lækka húshitunar og rafmagnskostnað á hinum svo kölluðu köldu svæðum. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ítrekaði það nú í gær 6. júlí, í Ríkisútvarpinu.
22:37 21. jún. 2010   Eru fréttirnar kannski betri?
Fréttirnar af stærri þorskstofni eru jákvæðar og uppörvandi. Árið 2007 var talið að viðmiðunarstofninn, sem lagður er til grundvallar kvótaúthlutun, yrði í ársbyrjun 2008 einungis um 570 þúsund tonn. Hafrannsóknastofnunin taldi og að framundan yrðu ekki skárri ár.
08:45 18. jún. 2010   Dómur Hæstaréttar: inngrip Alþingis óhjákvæmilegt
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
Dómur Hæstaréttar síðastliðinn miðvikudag gerir það óhjákvæmilegt að sett verði lög um framhaldið. Nú liggur fyrir að ólögmætt er að tryggja veitt peningalán í íslenskum krónum miðað við verð erlendra mynta. Fram hefur komið að dómurinn snertir lán að fjárhæð nokkur hundruð milljarða króna.
21:22 11. jún. 2010   Opinber hugleiðing um heilbrigðisráðherra og ráðuneyti hennar
Frá undirskriftarhópi gegn niðurskurði á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
Þar sem ekki hafa borist nein svör við síðast opinbera bréfi okkar til Álfheiðar heilbrigðisráðherra, þá höfum við ákveðið að gera eina tilraun enn til að ná eyrum hennar. Það er auðvitað deginum ljósar að við erum ekki hátt skrifuð hjá háttvirtum heilbrigðisráðherra, allavega telur hún algerlega ónauðsynlegt að svara fyrirspurnum okkar, sama hvar við setjum þær fram.
17:45 09. jún. 2010   Kvótakerfið kostaði 400 milljarða króna á 12 árum
Kvótakerfið í sjávarútvegi jók skuldir sjávarútvegsins um 400 milljarða króna frá 1997 til 2008. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri. Skýrslan var unnin fyrir starfshóp sem vinnur að endurskoðun fiskveiðistjórnunarinnar.
17:22 08. jún. 2010   Í lok kjörtímabilsins
Eftir Valgarð Hilmarsson
Það kjörtímabil bæjarstjórnar Blönduósbæjar sem nú er að ljúka hefur verið um margt viðburðaríkt og hafa skiptst á skin og skúrir. Á síðustu misserum þess, eftir hrunið, bárum við gæfu til að fara að vinna þéttar saman og hætta að tala um við og þið heldur eingöngu við og unnum þar með þétt saman að hagsmunum bæjarins.
11:03 07. jún. 2010   Á Sjómannadegi
Eftir Jón Bjarnason
Um mitt síðasta ár skipaði ég starfshóp um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Markmiðið var og er að ná fram alvöru breytingum á núverandi sjávarútvegsstefnu þannig að greininni verði sköpuð góð rekstrarskilyrði til framtíðar, fiskveiðar verði stundaðar bæði samfélagslega og vistfræðilega með sjálfbærum hætti og sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar.
07:56 04. jún. 2010   Til varnar Nöldra
Eftir Guðmund St. Ragnarsson
Nöldri getur verið óttalega hvimleiður á stundum. Hann er eiginlega stundum óþolandi. Þótt Nöldri sé afar ófullkominn er hann oft einstaklega naskur í samfélagsrýni sinni á Blönduós og nágrenni. Jón Jónsson, sem ég veit ekki hvort skrifar undir dulnefni (enda svolítið þannig nafn), lætur Nöldra fara í taugarnar á sér og skrifaði um það pistil á Húnahorninu.
  1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næstu 16-30
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...).
::Lesa
Sveitabakarí
Spaugið
07. ágúst 2010
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð?"
Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð? Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð?
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahornið