Húnahornið http://www.huni.is/ Fréttir, íþróttir og pistlar sem birtast á heimasíðunni huni.is. SMALI xL 2 Mon, 6 Feb 2012 09:15:20 GMT Klifuræfing á Skagaströnd Félagar úr Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd og Björgunarsveitinni Húnum úr Húnaþingi vestra komu saman í íþróttahúsinu á Skagaströnd í gær og æfðu klifur. Alls mættu tíu manns frá sveitunum tveimur sem skemmtu sér í klifurveggnum í um tvær klukkustundir. Fréttir Sun, 5 Feb 2012 22:19:00 GMT Opna listasýningu í tilefni dagsins Á degi leikskólans sem haldinn verður á morgun, 6. febrúar, ætla nemendur og kennarar leikskólans Barnabóls á Skagaströnd að opna listsýningu í útibúi Landsbankans með fjölbreyttum verkum eftir nemendur á aldrinum 1-6 ára. Einnig verður farið á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem afhent verður plakat með gullkornum leikskólanemenda. Fréttir Sun, 5 Feb 2012 21:49:00 GMT Leikfélag Blönduóss fær leikstjóra Næstkomandi þriðjudagskvöld kemur leikstjórinn Jakob S. Jónsson til Blönduóss. Allir sem hafa áhuga á að starfa með félaginu er hvattir til að mæta með góða skapið í Félagsheimilið kl. 20:00 þriðjudaginn 7. febrúar. Fréttir Sun, 5 Feb 2012 21:47:00 GMT Áhugasamt fólk vantar í stjórnir hjá Hvöt Ungmennafélagið Hvöt mun halda aðalfundi sína á næstunni en um er að ræða fundi hjá aðalstjórn, knattspyrnudeild og sunddeild. Ljóst er að einhverjir stjórnarmenn munu hætta og því er hér auglýst eftir fólki í aðalstjórn og stjórn knattspyrnudeildar. Fréttir Sat, 4 Feb 2012 17:35:00 GMT Lumar þú á góðri ljósmynd úr starfi USAH síðastliðin 100 ár? Í tilefni af 100 ára afmæli USAH verður haldin ljósmyndasýning í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi þann 31. mars n.k. Því biðlar nefnd vegna sýningarinnar til Húnvetninga nær og fjær um myndir úr starfi sambandsins undanfarin ár. Fréttir Sat, 4 Feb 2012 09:28:00 GMT Mögnuð uppskeruhátíð getraunaleiks Hvatar Uppskeruhátíð fyrir vorleik Getrauna Hvatar var haldin í gær í norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar og var mæting með ágætum. Dregist hafði nokkuð að halda uppskeruhátíðina en hún markaði einnig upphaf að næsta leik sem hefst nú um helgina. Fréttir Fri, 3 Feb 2012 12:33:00 GMT Fundu kannabisplöntur á eyðibýli Lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri fundu 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun á kannabis. Eyðibýlið hefur ekki verið í ábúð í mörg ár og eigendur fluttir á brott. Málið er í rannsókn. Fréttir Fri, 3 Feb 2012 12:20:00 GMT Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins mánudaginn 6. febrúar næstkomandi. Einkunnarorð dagsins eru – Við bjóðum góðan dag alla daga -. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við. Fréttir Fri, 3 Feb 2012 07:26:00 GMT Hittingur í Perlunni hjá húnvetnskum konum Mánaðarlegur hittingur hjá brottfluttum húnvetnskum konum er um helgina. Hittast þær í Perlunni og er laugardaginn 4. febrúar engin undantekning þar á. Þær hittast kl. 12:00 og verður eflaust frá mörgu að segja svona rétt eftir öll þorrablótin. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 21:05:00 GMT Auglýsa stöðu viðburðarstjóra Húnavöku Menningar- og fegrunarnefnd Blönduósbæjar hefur ákveðið að auglýsa á næstu dögum stöðu viðburðarstjóra Húnavöku. Ákveðið hefur verið að halda Húnavöku helgina 20.-22. júlí í sumar. Nefndin leggur jafnframt til að Húnavökubæklingurinn verði útvíkkaður þannig að hann nýtist fyrir allt árið sem kynning á svæðinu. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 20:56:00 GMT Boðið að taka yfir rekstur götuljósa Í ljósi hækkana á viðhaldsgjaldi götulýsingar hefur RARIK ákveðið að bjóða veghöldurum, sem þess óska, að yfirtaka rekstur götuljósa og sjá um hann sjálfir. Viðhaldsgjald götulýsingar hækkað um 7,5% um síðustu áramót um leið og verðskrá RARIK fyrir dreifingu hækkaði. Til viðbótar þeirri hækkun hefur verið ákveðið að hækka viðhaldsgjaldið aftur um 7,5% þann 1. júlí í sumar. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 20:38:00 GMT Töltmót barna og unglinga Sunnudaginn 5. febrúar næstkomandi klukkan 14 stendur æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista fyrir töltmóti barna og unglinga í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í pollaflokki, barnaflokki og unglingaflokki. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 20:31:00 GMT Erlendir ferðamenn í vandræðum við Hvítserk Í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð Björgunarsveitarinnar Húna vegna erlendra ferðamanna sem lent höfðu í vandræðum við Hvítserk og komust ekki til baka á jeppa sínum. Björgunarsveitarmenn úr Húnum mættu og svæðið og gekk vel að koma ferðamönnunum aftur upp á þjóðveginn og gátu þeir haldið för sinni áfram. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 20:30:00 GMT Hreppaþorrablót 2012 Hið árlega Hreppaþorrablót verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 11. febrúar næstkomandi. Húsið opnað klukkan 19:30 og borðhald hefst stundvíslega klukkan 20:30. Hljómsveitin „Hjónabandið“ með þeim Ernu og Árna frá Vöðlum í Önundarfirði leikur fyrir dansi. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 10:05:00 GMT Bæta þarf sjóvarnir við Blönduós Í nýlegri yfirlitsskýrslu Siglingastofnunar um sjóvarnir kemur fram að bæta þurfi sjónvarnir við Blönduós. Endurbyggja þarf sjóvörn móts við Brimslóð 2-8, byggja þarf nýja sjóvörn eða styrkja eldri sjóvörn við ós Blöndu, óseyrin að norðan og endurbyggja þarf sjóvörnina við Hafnarbraut og Ægisbraut. Fréttir Thu, 2 Feb 2012 07:58:00 GMT 60 krakkar mættu á fyrstu æfinguna í judó Mikið stuð var á fyrstu æfingunni í judó í íþróttahúsinu á Blönduósi í dag en um 60 krakkar voru mættir til að kynnast nýrri íþrótt. Judóíþróttin er ný á Blönduósi en þeir Haukur Suska Garðarsson og Magnús Valur Ómarsson kynntu íþróttina fyrir krökkunum og kenndu þeim fyrstu tökin. Fréttir Wed, 1 Feb 2012 21:48:00 GMT Horsens segir sig úr vinabæjarsamstarfi Borgin Horsens í Danmörku hefur sagt sig úr vinabæjarsamstarfi við Blönduósbæ, Moss í Noregi, Karlstad í Svíþjóð og Nokia í Finnland vegna fjárhagsörðugleika. Þetta kemur fram í bréfi frá Horsens til bæjarráðs Blönduósbæjar. Fréttir Wed, 1 Feb 2012 21:31:00 GMT Kynningarfundur um hitaveitu vel sóttur Fulltrúar frá RARIK héldu í dag kynningarfund í Skagabúð í Skagabyggð. Forstjóri RARIK Tryggvi Þór Haraldsson setti fundinn og stjórnaði honum. Á fundinum var fyrirhuguð hitaveitulögn til Skagastrandar kynnt og möguleiki á tenginu hitaveitu í dreifbýli á milli Blönduóss og Skagastrandar. Fundurinn var vel sóttur og urðu miklar og góðar umræður um málið. Fréttir Wed, 1 Feb 2012 21:11:00 GMT Skagaströnd áfram í Söngkeppni Samfés Söngkeppni Samfés fyrir Norðurland allt var haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð síðastliðið föstudagskvöld. Á Feyki.is kemur fram að þar voru saman komnir 620 unglingar sem skemmtu sér frábærlega vel og auðvitað alveg til fyrirmyndar að sögn Sigríðar Jóhannsdóttur forstöðukonu Húss frítímans á Sauðárkróki. Fréttir Wed, 1 Feb 2012 11:20:00 GMT Slökkviliðsstjórinn segir upp Slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu hefur sagt upp störfum vegna óánægju með fyrirhugaðan niðurskurð sem hann telur ógna öryggi samfélagsins. Hann gagnrýnir sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps fyrir að sniðganga reglur um öryggi og viðbrögðum í brunavörnum. Fréttir Wed, 1 Feb 2012 11:07:00 GMT Jákvæð áætlun sameinaðs sveitarfélags Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir sameinaðs sveitarfélags, Húnaþings vestra og Bæjarhrepps árið 2012 fyrir aðalsjóð og undirfyrirtæki. Áætlunin gerir ráð fyrir 4,6 milljón króna jákvæðri niðurstöðu af rekstri aðalsjóðs og 21,5 milljón króna jákvæðri niðurstöðu af rekstri A-hluta samstæðunnar. Fréttir Tue, 31 Jan 2012 22:38:00 GMT Aksturssamningur framlengdur Í morgun voru undirritaðir aksturssamningar á milli Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Norðurlandi vestra, Eyþings og Fjórðungssambands Vestfirðinga og Bíla og fólks ehf. / Sterna um áframhaldandi akstur á leiðunum Reykjavík - Snæfellsnes, Reykjavík – Borgarnes – Búðardalur, Reykjavík – Sauðárkrókur – Siglufjörður og leiðin á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Fréttir Tue, 31 Jan 2012 20:39:00 GMT Judóæfingar að hefjast á Blönduósi Æfingar í judó byrja miðvikudaginn 1. febrúar kl. 18:00 – 19:30 og verða haldnar í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Kennari verður Haukur Suska Garðarsson og honum til aðstoðar verður Magnús Valur Ómarsson. Fréttir Tue, 31 Jan 2012 16:16:00 GMT Skagstrendingar leggja töluvert fjármagn í hitaveituna Lagning hitaveitu frá Reykjum á Húnavöllum til Skagastrandar uppfyllti ekki kröfur RARIK um arðsemi. Ráðist var í verkefnið vegna þess að Skagstrendingar lögðu töluvert fjármagn í það. Oddviti sveitarstjórnar Skagastrandar segir að sveitarfélagið standi vel og vilji nýta fjármuni til að efla byggð. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins. Fréttir Tue, 31 Jan 2012 12:52:00 GMT Nýr getraunaleikur Hvatar hefst um helgina Nýr getraunaleikur hefst síðan laugardaginn 4. febrúar á skrifstofu Hvatar (fyrir ofan Samkaup). Opið verður á skrifstofunni á laugardaginn frá kl. 11:00 – 13:00 og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta léttur og skemmtilegur leikur sem allir geta tekið þátt í. Fréttir Tue, 31 Jan 2012 12:08:00 GMT