Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:36 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fimmtudaginn 31. júlí var í Morgunblaðinu lítil forsíðufrétt um að Landsvirkjun hyggist reisa í nánustu framtíð 3 virkjanir á veituleið Blönduvirkjunar. Ég fletti á blaðsíðu 20 þar sem tekin voru viðtöl við forsvarsmann Landsvirkjunar og stöðvarstjóra stöðvarstjóra Blönduvirkjunar og fjallað ítarlega um málið. Í umfjölluninni segir ennfremur að takmarkað framboð raforku standi orkufrekri atvinnuuppbyggingu á Sauðárkróki og á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir þrifum. Með virkjununum á veituleið Blönduvirkjunar á að bæta úr því. Engin viðtöl voru tekin við forsvarsmenn sveitarfélaganna í Húnaþingi vegna fréttarinnar. Það var og. Ég þurfti að lesa þetta yfir aftur: Með virkjununum í Blöndu á að bæta úr atvinnuuppbyggingu á Sauðárkróki og Eyjafjarðarsvæðinu.
Ég var barn á Blönduósi þegar umræðan um virkjun Blöndu hófst. Ég man sérstaklega eftir her góðra hugsjónarmanna sem fjölmenntu á palla Alþingis til að berjast fyrir virkjuninni. Og svo var virkjað. Mikil bjartsýni ríkti um að tilkoma virkjunarinnar myndi auka atvinnu í héraði og bæta lífskjör. Því miður er var sú ekki raunin til lengri tíma þótt vissulega hafi verið mikil umsvif á svæðinu á meðan framkvæmdir áttu sér stað og bændur fengu greiddar bætur vegna lands sem fór undir vatn. Varanleg störf vegna virkjunarinnar eru sárafá. Ég segi ekki engin en allt að því.
En þrátt fyrir framangreinda frétt er ekki öll nótt úti. Þann 15. janúar sl. var á Alþingi samþykkt eftirgreind þingsályktunartillaga: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun. Markmiðið með átakinu er að efla samkeppnishæfni svæðisins og undirbúa það fyrir þá uppbyggingu sem fylgir orkunýtingu Blönduvirkjunar og jafnframt vinna að markaðssetningu svæðisins sem iðnaðarkosts, svo sem fyrir gagnaver.”
Virkjum strax þessa þingsályktunartillögu. Það tók Alþingi tvö löggjafarþing að samþykkja jafn sjálfsagða ályktun og að framan greinir en málið komst fyrst á dagskrá þingsins í desember 2012. Í greinargerð með þingsályktuninni segir: ,,Frá því að byggingu Blönduvirkjunar lauk árið 1991 hafa sveitarfélög í Austur-Húnavatnssýslu unnið að því að laða orkufrekan iðnað í héraðið. Orka frá Blönduvirkjun er ekki nýtt á svæðinu en veruleg hagkvæmni er í því fólgin að nýta orkuna sem næst virkjunarstað og komast þannig hjá flutningstapi orku.”
Í 23 ár hefur verið unnið að því án árangurs að laða orkufrekan iðnað í héraðið. Í því ljósi er tilefni til að spyrja hvernig og sérstaklega hvenær ríkisstjórnin ætlar að koma á því samstillta átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Húnaþingi (sem því miður búa við krónískt samstöðuleysi eins og allir vita) sem nauðsynlegt er svo tillagan verði að veruleika? Á allur nýr orkufrekur iðnaður að eiga sér stað á Grundartanga sem er við höfuðborgarsvæðið? Hvað segja alþingismenn Norðvesturkjördæmis um það eða þingmenn yfirleitt? Hvað segir ráðherra byggðamála? Hvað segja heimamenn?Ég vona að sveitarstjórnarmönnum í Húnaþingi beri gæfa til baráttu, ákveðni og samstöðu í svona stóru máli og taki málið föstum tökum þegar í stað. Fyrir fólkið. Hagsmunirnir eru miklir. Núna er tíminn til að snúa vörn í sókn.
Höfundur er Húnvetningur búsettur í Reykjavík
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
|
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
|
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
|
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |