Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:06 0 0°C
Laxárdalsh. 19:06 0 0°C
Vatnsskarð 19:06 0 0°C
Þverárfjall 19:06 0 0°C
Kjalarnes 19:06 0 0°C
Hafnarfjall 19:06 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | Pistlar | 14. september 2014 - kl. 18:11
Ráðstefna um stuttrófukyn sauðfjár
Eftir Jóhönnu E. Pálmadóttur

Dagana 4.-8. september síðastliðinn var haldin ráðstefna í Félagsheimilinu á Blönduósi um stuttrófukyn sauðfjár í löndum sem liggja að Norður Atlandshafi og var hún opin öllum. Ráðstefnan var fjölmenn en allt að 100 manns sóttu hana frá 13 löndum. Þar á meðal frá Ástralíu, Suður Afríku, Kanada, Þýskalandi og Bandaríkjunum.

„North Atlantic Sheep and Wool Conference“ er haldin árlega og færist á milli aðila en þeir eru (auk Íslands) Noregur, Grænland, Færeyjar, Hjaltland, Orkneyjar, Suðureyjar og Mön. Þegar Textílsetrið tók ráðstefnuna að sér í Noregi árið 2012 var strax ákveðið að halda hana um réttarhelgi. Réttir og réttarstemming eins og okkur þykir eðlileg er algjörlega óþekkt annars staðar en hér.

Fyrir gesti okkar var það ógleymanleg upplifun að sjá safnið koma niður af Auðkúluheiðinni sem og réttir í Undirfellsrétt. Hvar sem við komum og hvert sem við fórum upplifðu gestirnir einstakan atburð í þeirra huga. Dáðust þeir að fyrirkomulaginu við réttarstörfin, innreksturinn og dáðust að samvinnunni hjá fólkinu. Þetta kennir okkur að oft er glöggt gestsaugað.

Fyrirlestrar voru haldnir fyrir hádegi en ferðir og heimsóknir eftir hádegi. Fyrirlesarar voru 11 frá 8 löndum og fjölluðu um allt frá sauðfjárrækt, litum búfjár, ull, vefnað og fílti. Vöktu fyrirlesararnir mikla lukku enda voru erindin fróðleg og spennandi. Á meðan á fyrirlestrum stóð um kljásteinavefstaðinn voru konur að vefa í miðaldabúningum. Handverkssýning frá aðildarlöndunum var haldin á meðan á ráðstefnunni stóð og heimsins stærsta peysa úr handspunninni ull hékk uppi fyrir framan húsið um helgina.

Ferðir og heimsóknir voru síðan eftir hádegið. Á leið norður var komið við í Ístex og Ullarselinu á Hvanneyri. Á föstudeginum var farið að Þingeyrakirkju, Undirfellsrétt, Vatnsdalshringinn, í Kvenfélagskaffi á Húnavöllum og endað í Auðkúlurétt til að sjá safnið koma niður.

Á laugardeginum var farið í heimsóknir í SAH afurðir, Heimilisiðnaðarsafnið, Minjastofu Kvennaskólans og Vatnsdælu á refli. Sunnudagurinn var nýttur í Skagafirðinum þ.e. Gestastofu Sútarans og Kakalaskála þar sem fólkið fékk sögu Haugsnesbardaga, neyttu Ásbirningablóts, nutu söngs Sóldísanna og frásagnar um miðaldabúninga.

Farið var yfir Kjöl eftir heimsókn í fjárhúsin í Stóradal á mánudeginum en það var síðasti dagurinn. Endað var í ullarvinnslunni Þingborg og fóru allir gestir hamingjusamir heim.

Að undirbúningi komu auk Textílsetursins, sem bar ábyrgð á ráðstefnunni, Bændasamtök Íslands, Ullarselið á Hvanneyri, Þekkingasetrið á Blönduósi og Landbúnaðarháskóli Íslands.

Hvar sem komið var, var tekið vel á móti hópnum enda gestirnir mjög ánægðir með frábærar móttökur og upplifun sem seint gleymist. Því miður var enginn áhugi á ráðstefnunni hjá fjölmiðlum en við munum reynað gera henni skil eins og möguleiki er á.

Við viljum þakka öllum sem lögðu okkur lið og gerðu okkur kleift að halda svona myndarlega ráðstefnu fyrir þeirra framlag og styrki.

Fyrir hönd undirbúningshópsins,

Jóhanna E. Pálmadóttir

Höf. rzg
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Glaðheimar
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
Kórinn á Blönduósi 1939
Kórinn á Blönduósi 1939
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið