Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:34 0 0°C
Laxárdalsh. 04:34 0 0°C
Vatnsskarð 04:34 0 0°C
Þverárfjall 04:34 0 0°C
Kjalarnes 04:34 0 0°C
Hafnarfjall 04:34 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 27. nóvember 2014 - kl. 19:04
Dagur atvinnulífsins haldinn í sjötta sinn

Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra verður haldinn þriðjudaginn 2. desember í Menningarhúsinu Miðgarði, klukkan 14:00. Þetta er í sjötta sinn sem Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa fyrir Degi atvinnulífsins á starfssvæði sínu. Viðburðinum er ætlað að skapa vettvang til kynningar á starfsemi sem fram fer á svæðinu og umræðu um atvinnumál.

Dagskrá:

  1. Setning: Adolf H. Berndsen, formaður SSNV
  2. Erindi: Árangur og mikilvægi markvissrar mannauðsstjórnunar. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, Carpe Diem.
  3. Kynning á fyrirtækjum sem tilnefnd hafa verið til Hvatningarverðlauna SSNV atvinnuþróunar 2014.
  4. Hvatningarverðlaun SSNV atvinnuþróunar afhent.

Svo sem sjá má lýkur dagskránni með afhendingu Hvatningarverðlauna SSNV atvinnuþróunar. Verðlaunin eru í senn viðurkenning fyrir góðan árangur og  hvatning til áframhaldandi starfsemi viðkomandi fyrirtækis/félags/einstaklings. Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra. Að þessu sinni er sjónum beint að fyrirtækjum og starfsemi í Skagafirði.

Úr hópi margra verðugra hafa eftirtaldir aðilar verið tilnefndir til verðlaunanna árið 2014.

Gæðingur Öl ehf. er brugghús á bænum Útvík í Skagafirði. Grunnurinn að brugghúsinu var lagður árið 2010 og árið 2011 komu fyrstu bjórarnir, Lager og Stout á markaðinn. Seinna komu Pale Ale, Hveitibjór og IPA bjór. Eigendur Gæðings reka einnig Micro bar á Sauðárkróki. Á þessu ári verða um 70-75 þús. lítrar af bjór framleiddir hjá fyrirtækinu.

Haf og land ehf. er sprotafyrirtæki sem stofnað var á vormánuðum 2014 í því skyni að efla ferðaþjónustu og sýna náttúruperlur og dýralíf við austanverðan Skagafjörð. Fyrirtækið rekur bátinn Súlu SK 6964 sem er yfirbyggður og tekur allt að 19 farþega. Í boði eru daglegar útsýnissiglingar en einnig eru ferðir sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavinanna.

Iceprotein ehf. er sprotafyrirtæki sem stofnað var í kringum rannsóknir á fiskpróteinum árið 2005. Iceprotein vinnur að rannsóknum og þróun á vinnslu verðmætra efna, aðallega úr sjávarfangi, með það að markmiði að auka nýtingu og verðmætasköpun í sjávarútvegi. Einnig hefur Iceprotein aðstoðað önnur fyrirtæki við mælingar á efnum og örverum og tekið þátt í kennslu, bæði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi.

Sauðárkróksbakarí var stofnað árið 1880. Fyrirtækið hefur ávallt lagt metnað sinn í að framleiða góða vöru. Áhersla er lögð á að nota uppskriftir sem hafa verið í fjölskyldunni í áratugi en einnig fylgja eftir nýjungum og að vera í takt við tímann. Kaffiterían rúmar allt að 40 manns en einnig hefur verið gerð góð útiaðstaða fyrir gesti.

Urðarköttur er fjölskyldufyrirtæki staðsett á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Meginverkefni fyrirtækisins er framleiðsla minkaskinna og rekstur skinnaverkunar. Einnig hefur verið unnið að því að þróa leiðir til nýtingar á þeirri minkafitu sem fellur til við verkun skinnanna og afrakstur þess er vörulínan Gandur sem samanstendur af græðandi smyrslum fyrir menn og dýr.  

Hvatningarverðlaun SSNV atvinnuþróunar hafa verið veitt frá árinu 1999. Eftirtaldir aðilar hafa hlotið verðlaunin:

Árið 2013 - Selasigling ehf. á Hvammstanga                       
Árið 2012 - Sjávarlíftæknifyrirtækið BioPol ehf. á Skagaströnd
Árið 2011 - Hlíðarkaup á Sauðárkróki
Árið 2010 - Ferðaþjónustan á Brekkulæk í Miðfirði
Árið 2009 - Léttitækni ehf á Blönduósi
Árið 2008 - Sjávarleður hf á Sauðárkróki
Árið 2007 - Siglufjarðar Seigur - bátasmiðja.
Árið 2006 - Forsvar ehf á Hvammstanga.
Árið 2004 - Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Árið 2003 - Háskólinn á Hólum.
Árið 2002 - Síldarminjasafnið á Siglufirði.
Árið 2001 - Hestamiðstöðin Gauksmýri.
Árið 2000 - Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Árið 1999 - Kántrýbær á Skagaströnd.

 

 

 

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið ‚Áfram Hvöt‘. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Glaðheimar
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið