Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:59 0 0°C
Laxárdalsh. 19:59 0 0°C
Vatnsskarð 19:59 0 0°C
Þverárfjall 19:59 0 0°C
Kjalarnes 19:59 0 0°C
Hafnarfjall 19:59 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 20. apríl 2015 - kl. 11:46
Makrílgjafakvóti fyrir milljarða
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Ríkisstjórnin hefur lagt fram lagafrumvarp um að lögfesta kvótasetningu á makríl, en hann er ný tegund í íslenskri lögsögu, og einnig verða heimiluð frjáls viðskipti með hann innan sjávarútvegsgreinarinnar.

Þessi gjörningur þýðir gjafakvóta fyrir tugi milljarða til aðila í greininni í boði stjórnvalda á sama tíma og launafólki eru skammtaðar launahækkanir úr hnefa í nafni stöðugleika!

Undanfarin ár hefur makrílveiðum verið stjórnað frá ári til árs með reglugerðarheimildum sjávarútvegsráðherra en enn hefur ekki tekist að semja um veiðarnar milli þeirra strandríkja sem í hlut eiga.

Makríllinn kom inn í lögsögu okkar uppúr 2007 en fór ekki að veiðast að ráði fyrr en árið 2009 og hefur síðan þá skilað þjóðarbúinu, og sérstaklega uppsjávargeiranum, gífurlegum tekjum.

Árið 2010 var uppsjávargeiranum sem hóf veiðar settar skorður í 112 þúsund tonnum og í framhaldinu var makrílnum úthlutað með reglugerð til fjögurra útgerðarflokka, þ.e. uppsjávargeirans, frystiskipa, ísfisktogara og krókaaflamarksbáta.

Frá árinu 2012 voru veiðunum settar þær skorður að aflinn færi til manneldis og gekk það eftir og skilaði margfalt meira verðmæti í kjölfarið.

Stórskipaflotinn hefur ekki þurft að kosta til miklum fjármunum vegna makrílveiðanna heldur hafa þessar útgerðir getað nýtt þann búnað sem fyrir var í veiðum og vinnslu og hefur þessi makrílveiði því verið algjör bónus og í raun hvalreki fyrir þær.

Í dag eru um 114 minni bátar á makríl þar sem eigendur hafa þurft að fara út í kostnaðarmiklar breytingar á bátum sínum sem kosta allt frá 6 til 10 milljónir króna, sem er hátt hlutfall af verðmæti bátanna. Makrílveiðar minni skipa og báta hafa skipt miklu fyrir vinnslu í landi og oft verið forsenda þess að halda fiskvinnslu í landi gangandi yfir sumarið.

Ráðherra hefur skýlt sér á bak við álit umboðsmanns Alþingis um að óheimilt sé að stjórna veiðunum áfram með reglugerðarheimildum og að uppsjávarfyrirtæki hafi kært þann þátt úthlutunar makríls að öðrum en uppsjávarveiðigeiranum einum sé veitt hlutdeild í kvótanum. Þetta er skálkaskjól ráðherra því að sjálfsögðu er hægt með lögum að stjórna makrílveiðum með öðrum hætti eins og t.d. með því að leigja hann á ársgrundvelli eða að bjóða hann út innan skilgreindra marka. Ríkisstjórnarflokkarnir eru fyrst og fremst að fylgja eftir sinni stefnu með kvótasetningu og framsali sem kallar um leið á brask og skuldsetningu innan greinarinnar og jafnframt mikla samþjöppuna á kostnað minni útgerða sem ekki munu rísa undir enn frekari skuldsetningu.

Þetta verður rothögg fyrir báta strandveiðihluta makrílveiðanna sem fá það litla úthlutun að þeir verða annað hvort að leigja makrílkvóta af öðrum eða selja sína makrílhlutdeild. Þarna er verið að búa til bólu hagkerfi og sýndarverðmæti með því að koma því til leiðar með reglusetningu að verslun hefst með makrílkvótann milli útgerða í greininni með tilheyrandi viðbótar skuldsetningu. Fjármálastofnanir munu að sjálfsögðu fitna á aukinni skuldsetningu í greininni og með veðsetningu á makrílkvóta, eftirspurn eftir lánsfé eykst og vextirnir hækka í kjölfarið. Með ráðstöfun ríkisstjórnarinnar er í raun verið að loka á nýliðun í makrílveiðum og á þá þróun sem verið hefur í vinnslu makríls til manneldis í fiskvinnslum víða í sjávarbyggðum.

Það er ömurlegt að stjórnvöld nýti ekki það gullna tækifæri sem nú gefst til jákvæðra breytinga með því að úthluta þessari nýju tegund, makrílnum, með öðrum hætti en gert er í núverandi kvótakerfi sem er mjög umdeilt og óréttlátt og engin sátt er um í þjóðfélaginu og hefur valdið mikilli samþjöppun með tilheyrandi byggðaröskun.

Ég tel skynsamlegt að við lögfestum með sérlögum að makrílkvótinn skuli leigður út á ársgrundvelli til þeirra fjögurra útgerðarflokka sem hafa stundað veiðar undanfarin ár og endurskoðum kvótahlutfall þeirra innbyrðis. Leigan verði hlutfall af aflaverðmæti upp úr sjó og nýtist samfélaginu öllu.

Það veit enginn hve makríllinn verður lengi í íslenskri lögsögu þó við viljum og vonum að hann sé kominn til að vera. Hversvegna að búa til úr þessari sameiginlegu auðlind peningamaskínu fyrir þá sem fá gefins makrílkvóta og skuldsetja greinina samhliða þegar engin þörf er á slíku? Það afgjald sem ráðherra leggur til, þ.e. 10 kr. pr kg, er brotabrot af varanlegri sölu á þorskkvóta í dag þó tekið sé tillit til þess að þorskurinn sé verðmætari tegund.

Þessi gjafakvóta gjörningur er hneyksli og gerir ekkert annað en að hella olíu á eldinn í áframhaldandi deilum meðal landsmanna um ráðstöfun sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Norðvestur kjördæmis.

Höf. rzg
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Glaðheimar
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið