Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:56 0 0°C
Laxárdalsh. 04:56 0 0°C
Vatnsskarð 04:56 0 0°C
Þverárfjall 04:56 0 0°C
Kjalarnes 04:56 0 0°C
Hafnarfjall 04:56 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Guðríður B. Helgadóttir. Ljósmynd: Feykir.is/BÞ
Guðríður B. Helgadóttir. Ljósmynd: Feykir.is/BÞ
Pistlar | 16. júlí 2015 - kl. 09:46
Landhelgi Íslands
Eftir Guðríði B. Helgadóttur

Það er ekki ýkja langt síðan, og enn í fersku minni margra, baráttan fyrir því að fá landhelgi Íslands viðurkennda og færða út í það form sem nú er. Áður en það gerðist, fiskuðu aðrar þjóðir hér upp undir landsteina og þurrkuðu upp nærtækustu fiskimiðin, svo landsmenn urðu að damla á sínum bátkænum lengra út, eða sitja í landi þegar illa gaf á sjó. En framsýnir menn sáu vandann, börðust fyrir breytingum og unnu.

Nú bendir allt til að land -HELGI  NÁTTÚRU ÍSLANDS sé í sömu aðstöðu og að henni sótt úr öllum áttum.

Hennar eigin fósturbörn, hamast af fullkomnu andvaraleysi og eigingirni að krefja hana  um fleiri og stærri fórnir, meira frelsi til að valsa um allt á skýtugum skónum, opna alla skápa og hillur í matar og forðabúri heimilisins, spilla og lítilsvirða hvað sem hönd á festir. Beina svo allri hugsuninni að, hvað sé hægt að selja hæstbjóðanda af erfðasilfri og skrautmunum móðurinnar. Það er varla von til að þeir sem að koma viti hvar þeir megi ganga eða hvers sé af þeim vænst.

Birt hafa verið gögn: NÝTT VERKFÆRI Í SKIPULAGSVINNU, skýrsla um kortlagningu AUÐLINDA ÍSLENSKRAR FERÐAÞJÓNUSTU. Kort með þéttum stjörnum um allt land, hvar finna megi dýrmætustu stjörnurnar.

Hvar  er kortið yfir VERKFÆRI TIL SKIPULAGSVINNU VIÐ AÐ KORTLEGGJA HVAR OG HVERNIG SKULI UNDIRBÚA ÞESSA STAÐI TIL AÐ TAKA Á MÓTI öllum þeim ferðamönnum sem þangað yrði stefnt ???

Enginn opnar hús sín og bíður þangað gestum, nema hafa áður byggt og undirbúið fyrir samkvæmið.

Með fullri virðingu fyrir ferðaþjónustunni og möguleikum hennar, þá verður að KREFJAST ÞESS, að forusta hennar og stjórnvöld, BYRJI Á ÞVÍ að undirbúa valda staði sem ferðamönnum er beint að og þar fylgt eftir að farið sé að settum reglum.  Og síðan fjölga stöðum eftir því sem þeir eru til þess reiðubúnir með forvörnum hér og þar um landið.  Allsstaðar verður að fylgjast með álagi og ástandi svæða og loka ef hætta er á skemmdum, þar til úr hefur verið bætt. Landhelgisgæsla lands er sömu lögmálum háð og miðin kring um land. Hvorutveggja eru gullkistur þjóðarinnar sem verður að gæta og vernda. Það hefur gefist vel með fiskimiðin og full ástæða til að yfirfæra nú árangur þeirrar reynslu til atlögu við þau skylduverk sem nú bíða úrlausnar til bjargar aðsteðjandi vá gagnvart landinu. Allur sá fjöldi ferðamanna sem hingað er stefnt, hlýtur að skilja eftir þær tekjur sem þarf, til að standa undir kostnaði við þennan undirbúning. Annars verður að setja ítölu á heimsóknir til landsins eins og beit  búpenings áður en verra hlýst af.

Að hnuðla náttúrupassaskildu upp á landsmenn sjálfa fyrir að búa hér, bjargar engu til verndar lands, en stofnar til úlfúðar og mótþróa. Að greiða fyrir aðgang að sérundirbúnum stöðum og viðburðum gera allir sem sjálfsagðan hlut, bæði hér og erlendis. Það er frjálst val.

Stjórnvöld, sem ekki gera sér grein fyrir því, eru ekki starfi sínu vaxin.

Hér er vöntun á skilningi stjórnvalda á lífi og líðan lands og þegna. Undirstöðu þess að hér þrífist samfélag og byggð, fólk og fénaður, hugsjónir og vísindi, mannbætandi daglegt LÍF. Hver vill stuðla að því að það sjái gestsaugað fyrst of fremst þegar hér er lent á landi og ferðast um?

Álbræðslureykur og uppistöðulón svara ekki væntingum um leit að óskemmdu eðlilegu landi og lífi.

Guðríður B. Helgadóttir  

Höf. rzg
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Glaðheimar
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið