Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:15 0 0°C
Laxárdalsh. 05:15 0 0°C
Vatnsskarð 05:15 0 0°C
Þverárfjall 05:15 0 0°C
Kjalarnes 05:15 0 0°C
Hafnarfjall 05:15 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Pistlar | 11. nóvember 2015 - kl. 22:12
Öryggismál sjómanna í forgang
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Öryggismál sjómanna hafa mikið verið í umræðunni undanfarið í ljósi hörmulegs sjóslyss sem varð í sumar þegar Jón Hákon BA–60 sökk út af Aðalvík og einn maður fórst en þrír komust lífs af þegar nálægur bátur kom þeim til bjargar á ögurstundu.

Myndir úr neðansjávarmyndavél sýna að sjálfvirkur sleppibúnaður virkaði ekki og björgunarbátar opnuðust ekki þegar á reyndi.

Það vakti einnig athygli nú á dögunum, þegar sanddæluskipið Perlan sökk í Reykjavíkurhöfn, að sleppigálgi virkaði ekki sem skyldi. Björgunarbátar skipsins, sem eru einn mikilvægasti öryggisþátturinn sem sjómenn reiða sig á, opnuðust ekki.

Rannsóknarstjóri sjóslysanefndar segir af þessu tilefni að það komi til greina að endurskoða verklags- og öryggisreglur. Já, þótt fyrr hefði verið!

Allt frá því að Jón Hákon BA–60 sökk sl. sumar hafa komið fram fjölmargar áskoranir frá sjómannasamtökum, félagasamtökum, sveitarfélögum og almenningi í landinu um að skipsflakið verði sótt á hafsbotn svo rannsaka megi til fullnustu orsakir þess að hinn mikilvægi öryggisbúnaður virkaði ekki þegar slysið varð. Allt verður að gera til þess að rannsaka hvað veldur því að sjálfvirkur öryggisbúnaður bregst þegar á reynir.

Ég hef tekið þessi mál upp í þinginu ítrekað og reynt að hreyfa við rannsókn málsins eins og mögulegt er. Enda þótt vísað hafi verið til þess að rannsóknanefnd samgönguslysa sé sjálfstæð í störfum sínum þá tel ég það vera skyldu okkar þingmanna að sinna eftirlitshlutverki bæði hvað varðar það að tryggja að eftirlit með öryggisbúnaði sé tryggt og að nægar fjárveitingar séu til rannsókna sjóslysa enda þótt verkefni á þeim vettvangi geti reynst umfangsmikil eins og það að ná skipsflakinu af Jóni Hákoni BA–60 upp af hafsbotni í þágu rannsóknarinnar á slysinu.

Til þess að fara yfir þessi mál hef ég fengið til fundar við atvinnuveganefnd á tveim fundum í liðnum október mánuði fjölda gesta sem málið varðar, s.s. rannsóknarnefnd samgönguslysa, fulltrúa sjómannasamtaka, SFS, LS, eftirlitsaðila, fulltrúa framleiðenda öryggisbúnaðar um borð í bátum og skipum, fulltrúa úr innanríkisráðuneytinu og forstjóra Samgöngustofu.

Þessir fundir hafa verið mjög upplýsandi og til góðs þar sem þessir aðilar hafa farið yfir verkferla, skýrt hvar ábyrgð hvers og eins liggur og fjallað um mikilvægi þess að með ítarlegri rannsókn sjóslysa sé mögulega hægt að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig og draga megi þar með úr líkum á dauðsföllum og slysum til sjós í framtíðinni.

Það fer ekki á milli mála að við Íslendingar höfum verið mjög framarlega hvað varðar öryggi sjófarenda. Tilkoma Slysavarnarskóla sjómanna hefur skipt sköpum í þeim efnum ásamt því að hér á landi hefur verið þróaður ýmis björgunarbúnaður sem hefur bjargað fjölda mannslífa bæði á bátum og skipum.

Því vekur það mikinn óhug að ekki sé hægt að leggja fullt traust á þann sjálfvirka öryggisbúnað sem um ræðir og á meðan svo er upplifa sjómenn að þeir búi við falskt öryggi og aðstandendur þeirra eru áhyggjufullir.

Það er því brýnt að allir þeir sem koma að öryggismálum og slysavörnum sjómanna taki höndum saman um að komast til botns í því hversvegna sjálfvirkur björgunarbúnaður um borð í Jóni Hákoni BA–60 virkaði ekki.

Það hvílir einnig mikil ábyrgð á höndum Samgöngustofu, rannsóknarnefndar samgönguslysa og þeirra einkaaðila sem sjá um efirlit með öryggisbúnaði. Rannsóknin á ekki að ganga sérstaklega út á leit að sökudólgi heldur þarf fyrst og fremst að leiða í ljós hvað fór úrskeiðis og hvernig má koma í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig.

Rannsóknir á sjóslysum við Ísland eiga að vera í fremstu röð og unnar faglega og þar mega fjármunir ekki verða nein fyrirstaða því mannslíf eru þar í húfi.

Ég lýk þessari grein minni með því að taka enn og aftur undir kröfur sjómanna og annara þeirra sem láta sig öryggismál sjómanna varða um að tryggja verður öryggi sjófarenda og hraða rannsókn sjóslyssins á Jóni Hákoni BA–60 eins og kostur er á. Til þess að unnt verði að treysta niðurstöðum rannsóknarinnar til fulls verður að ná flakinu upp af hafsbotni eins fljótt og unnt er svo kanna megi björgunarbúnað bátsins.

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður Vinstri grænna og varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis.

 

Höf. rzg
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Glaðheimar
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
Kórinn á Blönduósi 1939
Kórinn á Blönduósi 1939
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið