Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:54 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:54 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:54 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:54 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:54 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:54 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það er staðreynd að veruleg fjölgun hefur átt sér stað á leigumarkaði, frá árinu 2008. 20,8 % heimila voru á leigumarkaði árið 2014, samanborið við 12,9 % árið 2008. Auk þessa hafa kannanir, m.a. frá ASÍ sýnt fram á að margir þeirra sem búa á leigumarkaði, búa við verulega þungan húsnæðiskostnað. Algengt er að sá húsnæðiskostnaður nemi á bilinu 40 – 70 % af ráðstöfunartekjum.
237 milljarðar frá 2008
Frá árinu 2008 hefur verið farið í umfangsmiklar aðgerðir í húsnæðismálum. Nema þær aðgerðir að heildarumfangi 237 milljörðum. Má þar helst nefna framlag til Íbúðarlánasjóðs, í vaxtabætur, sérstakar vaxtabætur og leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum. En þessar aðgerðir hafa ekki skilað sér til þeirra sem búa á leigumarkaði. Því er kominn tími til að ráðast í verulegar umbætur á leigumarkaðsmálum.
Bætum ástandið
Þessa dagana vinnur velferðarnefnd þingsins með húsnæðisfrumvörp sem ætlað er að bæta ástandið á leigumarkaðnum. Unnið er að því að fjölga íbúðum um 2300 talsins, á þessu og næstu þremur árum. Unnið að því að auka húsnæðisbætur til leigjenda, styrkja húsnæðissamvinnufélög og lagfæra núverandi húsaleigulög. Áætlað er að umrædd frumvörp verði afgreidd út úr velferðarnefnd á næstu vikum og mikilvægt er að frumvörpin komist hratt og vel í gegnum þingið. Þessi frumvörp eru tengd kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.
Frumvörpin ná markmiði sínu
Á dögunum birti Seðlabanki Íslands umsögn vegna húsnæðisfrumvarpanna er varða almennar íbúðir og húsnæðisbætur. Í umsögnum bankans kemur fram að áhrif frumvarpanna verði í samræmi við þau markmið sem frumvörpunum er ætlað að ná, það er að koma á móts við húsnæðiskostnað leigjenda. Um frumvarp um húsnæðisbætur segir í umsögn Seðlabankans … ,,það felur í sér að þær fjölskyldur sem njóta kostnaðarþátttöku ríkisins samkvæmt frumvarpinu munu með tímanum þurfa að ráðstafa nokkru minni hluta tekna sinna en ella til húsnæðis og þar af leiðandi hafa meira til ráðstöfunar í aðrar neysluvörur og sparnað.“ Í umsögn Seðlabankans um almennar íbúðir fyrir efnaminni leigjendur segir … ,,með frumvarpinu er lagt til að verulegum fjárhæðum verði varið til uppbyggingar á leiguhúsnæði sem verði ráðstafað til tekjulágra og annarra sem tilgreindir eru í frumvarpinu. Að öðru óbreyttu mun slíkt leiða til þess að leiguverð á slíkum íbúðum lækkar.
Þessi umsögn er í samræmi við það sem ráðgjafafyrirtækið Analytica benti á, í umsögn sinni þegar umrædd frumvörp voru til vinnslu innan velferðarráðuneytisins.
Ánægjulegt er að sjá, að stutt sé í að umrædd frumvörp verði að lögum. Til hagsbóta fyrir einstaklinga og fjölskyldur í landinu.
Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl vera haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
|
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
|
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |