Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 07:09 0 0°C
Laxárdalsh. 07:09 0 0°C
Vatnsskarð 07:09 0 0°C
Þverárfjall 07:09 0 0°C
Kjalarnes 07:09 0 0°C
Hafnarfjall 07:09 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 05. maí 2016 - kl. 21:13
Pælingar um álver
Eftir Hrafnhildi Unu Þórðardóttur

Álverið á Hafursstöðum hefur verið á vörum margra undanfarna mánuði og eru skoðanir manna misjafnar. Umræðan um þetta málefni síðasta sumar var í þá átt að ég hélt að þetta væri klappað og klárt og að fyrsta skóflustungan væri á næsta leiti. En þegar ég fór að kynna mér málið nánar komst ég að því að svo er ekki raunin.

Þetta verkefni er að mínu mati á algjöru byrjunarstigi, allavega út frá umhverfislegu sjónarmiði. Ekki er búið að gera fullnægjandi umhverfismat til þess að sjá hvort að landið og lífríkið í kring geti í raun tekið á móti því mikla áreiti sem þess háttar iðnaður myndi valda. Ekki er búið að gera neinar rannsóknir á jarðfræðilegum aðstæðum í landi Hafursstaða og gróðurfarsrannsóknir hafa ekki farið fram. Meta þarf hvort styðjast eigi við vothreinsun eða þurrhreinsun við losun loftmengunarefna en vothreinsun þýðir að mengunarefni eru losuð út í sjó á meðan þurrhreinsun losar í loft. Aðalbjörg Birna, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir að báðar þessar aðferðir geti haft neikvæð áhrif á umhverfið en meta þurfi hvor verði skaðminni út frá aðstæðum við Hafursstaði.

Nýlega fengu Samtök sveitafélaga á Norðurlandi vestra 30 milljón króna styrk frá fjárlaganefnd til þess að nota til rannsókna á svæðinu. Hvað þessar rannsóknir leiða í ljós veit ég ekki en ég get ímyndað mér að það verði eitthvað á þessa leið: „Ályktað var að álverið myndi hafa umtalsverð jákvæð áhrif á samfélagið en áhrif á aðra umhverfisþætti yrðu allt frá því að vera óveruleg í að vera nokkuð neikvæð“ (samanber mat á umhverfisáhrifum frá öðrum álverum t.d. Fjarðaáli og álverinu á Bakka). Vitað er að þetta álver myndi hafa góð áhrif á samfélagið, fleiri íbúar, peningar til sveitarfélaganna og margt annað. Þetta er fallegur draumur eins og atvinnuástandið er hér á svæðinu en erum við virkilega tilbúin að láta það vega meira en áhrifin á náttúruna yrðu „allt frá því að vera óveruleg í nokkuð neikvæð“

Þessi úthlutun er að mínu mati einkennileg. Á sama tíma fær Skaftárhreppur engan styrk frá fjárlaganefnd til þess að koma í veg fyrir það mikla sandfok sem mun eiga sér stað þar í sumar og næstu árin vegna Skaftárhlaups síðasta haust, með þeim afleiðingum að svifryksmengun á svæðinu verður hátt yfir heilsufarsmörkum. Ég verð að spyrja, hvar er forgangsröðunin?

En það sem er mér efst í huga í sambandi við þetta allt saman er hvaðan öll þessi orka á að koma, eins og staðan er í dag er ekki til nægileg umframorka í landinu til þess að framfleyta álveri sem þessu. Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar sagði fyrir tveimur árum í sambærilegu máli að virkja þyrfti á ný ef fara ætti í slíkar framkvæmdir.

Að nýta orkuna frá Blönduvirkjun sem best með því að nýta rafmagnið í heimabyggð er alveg góð og gild hugsun, en Blönduvirkjun ein og sér framleiðir ekki nóg af rafmagni til þess að framfleyta þessu álveri. Hvaðan á líka orkan að koma sem orkan frá Blönduvirkjun hefur hingað til verið notuð í? Það er engin lausn falin í því að vera alltaf að virkja og virkja og ganga endalaust á landið. Upp komu þær hugmyndir að virkja jökulárnar í Skagafirði við Skatastaði til þess að knýja þetta álver en nýlega var lagt til að Skatastaðavirkjanir C og D verði settar undir verndarflokk svo ekki sé hægt að virkja þær. Viljum við virkilega sjá sömu breytingar verða á umhverfinu í Skagafirði og urðu þegar Blanda var virkjuð?

Við mannfólkið þurfum að hætta að koma fram við jörðina eins og hún sé hótel og fara að hugsa um hana sem heimili. Það er engin þerna sem kemur og þrífur upp eftir okkur skítinn og skiptir út þeim hlutum sem við erum búin að skemma. Gjörðir okkar hafa ekki einungis áhrif á okkur mennina heldur allt lífríkið á jörðinni. Það er því margt sem þarf að ígrunda áður en framkvæmdir á álverinu hefjast og vona ég að þið, samsveitungar mínir, veltið málinu aðeins fyrir ykkur áður en þetta álver verður að veruleika.

Hrafnhildur Una - nemandi í vist- og umhverfisfræði við Menntaskólann á Akureyri. 

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið ‚Áfram Hvöt‘. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Glaðheimar
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið