Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:13 0 0°C
Laxárdalsh. 23:13 0 0°C
Vatnsskarð 23:13 0 0°C
Þverárfjall 23:13 0 0°C
Kjalarnes 23:13 0 0°C
Hafnarfjall 23:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 19. ágúst 2016 - kl. 20:49
Skólarnir eru lífæð byggðanna
Eftir Bjarna Jónsson

Leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar – öll menntun í heimabyggð skiptir miklu máli fyrir lífsgæði og val á búsetu fólks. Þessa dagana er starfið að hefjast í öllum skólum landsins.

Framhaldsnám í heimabyggð hefur verið sérstakt baráttumál landsbyggðarinnar á undanförnum árum. Sjálfræðisaldurinn er jú 18 ár og foreldrar vilja ógjarnan senda börn sín ung að heiman í fjarlæga landshluta til að geta sótt þá menntun sem þau eiga rétt á.

Stöðugt þarf að verja fjárveitingar til eldri framhaldsskólanna hvar sem er á landinu. Mér verður m.a. hugsað til Menntaskólans á Ísafirði og Fjölbrautaskólanna á Akranesi og Sauðárkróki.

Mennt er máttur. Það þurfti að berjast fyrir stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði, Menntaskólans í Borgarnesi, Menntaskólans á Tröllaskaga og framhaldsdeildanna í Vesturbyggð á Patreksfirði og nú síðast á Hólmavík, Hvammstanga og Blönduósi svo dæmi séu nefnd.

Með samstöðu og einbeittum vilja heimamanna og velvilja stjórnvalda tókst að koma á þessu mikla hagsmunamáli íbúanna. Sem sveitarstjórnarmaður, á vettvangi landshlutasamtakanna og sem formaður skólanefndar FNV var ánægjulegt að geta stutt þessa baráttu heimafólks fyrir auknu framboði menntunar á svæðunum. Framhaldsdeildirnar á Hólmavík, Hvammstanga og á Blönduósi hafa FNV á Sauðárkróki sem móðurskóla sinn en framhaldsdeildin á Patreksfirði sækir til Fjölbrautarskóla Snæfellinga í Grundarfirði.

Mannréttindi fjölskyldunnar

Unglingsárin eru tími mikilla umbrota hjá hverjum einstaklingi og ákvarðanir teknar sem skipta miklu máli fyrir framtíðina bæði í leik og starfi.

Fyrir fjölskylduna eru það hrein mannréttindi að geta verið í sem mestum samvistum við unglingana sína á þessum tíma og veitt þeim allan stuðning og hvatningu sem nærsamfélagið getur lagt þeim til. Þessar staðreyndir eru í raun áréttaðar í sjálfræðislögunum, en með þeim hafa heimili og fjölskylda axlað ábyrgð á börnum sínum að átján ára aldri og því er eðlilegt að skipulag menntunar í landinu taki mið af því. Auk þess er sá kostnaður óheyrilegur sem leggst á fjölskyldur við að senda börn langan veg til að njóta sjálfsagðrar menntunar og ekki á allra færi að standa undir honum.

Sóknarfærin eru í menntun

Fjölbreytt námsframboð í heimabyggð styrkir sjálfsímyndina, eykur samkeppnishæfni og hefur margfeldisáhrif í nærsamfélaginu. Framfarir í fjarskiptatækni bjóða upp á margþættan stuðning og möguleika í þessu starfi. Með stofnun framhaldsdeildanna á smærri stöðum hafa opnast nýir möguleikar fyrir fólk sem ekki átti tök á í uppvextinum að sækja sér framhaldsmenntun. Það var því mikil skammsýni og afturför þegar núverandi stjórnvöld ákváðu að takmarka framlög og stuðning ríkisins til framhaldsskólanna við nemendur undir 25 ára aldri. Sóknarfæri landsbyggðarinnar ásamt jafnrétti íbúanna eru einmitt fólgin í því að geta fléttað þetta tvennt saman, framhaldsmenntun ungs fólks og eldri íbúa, sem vegna fjarlægðar og kostnaðar gátu ekki sótt sér þessa grunnmenntun á sínum tíma.

Framhaldsskólarnir eru lykilstofnanir

Framhaldsskólarnir, móðurskólar framhaldsmenntunar í landinu, sem og hinar nýju framhaldsdeildir út um land, þurfa að búa við öryggi og möguleika til sóknar. Óvissan um fjármagn og óttinn við niðurskurð og lokanir deilda ásamt auknum kröfum um lágmarksfjölda í einstökum áföngum frá ári til árs gerir starfsumhverfið óöruggt. Mikilvægt er að framhaldsskólarnir fái aukinn skilning og fjárstuðning til að þróa námið og endurnýja og bæta tæknibúnað sinn.

Verður mér þar sérstaklega hugsað til verknámsins þar sem ég þekki best til við Fjölbrautaskólana á Akranesi og Sauðárkróki, sem þurfa verulega aukinn stuðning, en þar er unnið afar gott starf.

Þörfin fyrir bætta stöðu þessarar menntunar sýnir sig best í hinni gríðarlegu eftirspurn eftir iðnmenntuðum starfsmönnum á flestum sviðum atvinnulífsins. Íbúarnir og starfsfólkið vilja að sjálfsögðu hafa skólann sinn og nám barna sinna í öruggum höndum á heimaslóð.

Bjarni Jónsson

Höf. rzg
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Glaðheimar
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið