Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 19:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 19:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 19:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 19:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 19:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 19:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ég varð undrandi þegar ég las pistil frá Rúnari Aðalbirni Péturssyni, formanni USAH, sem birtur var hér á Húnahorninu. Í honum mátti lesa á milli lína að nokkuð margir hafa ekki greitt fyrir Húnavökuritið, sem sent var í hvert hús sýslunnar síðastliðið vor. Með Húnavökuritinu var greiðsluseðill og bréf þar sem USAH biðlaði til íbúa að teka vel á móti ritinu og greiða fyrir það annaðhvort með meðfylgjandi greiðsluseðli eða í heimabanka. Nú hljóta allir að gera sér grein fyrir því hversu mikill menningarauki það er, hverju héraði, að geta gefið út ársrit með viðtölum, frumsömdu efni ýmiskonar og fréttum úr héraði, svo ekki sé talað um myndir og minningarorð um látna sýslubúa o.fl. Ég þekki ekki hvort USAH hagnast eitthvað á útgáfu þessa rits en sé svo vitum við að sá hagnaður rennur til eflingar íþróttastarfs barna og unglinga okkar og ættu hvorki foreldrar eða afar og ömmur sem þetta ágæta rit fá sent heim til sín að sjá eftir rúmlega tvöþúsund krónum. Sé aftur á móti tap á útgáfunni vil ég brýna alla sem þetta nöldur lesa að draga nú upp budduna og borga Húnavökuritið sem nú hefur komið út í rúm 50 ár og er orðið merkilegt heimildarrit um sögu héraðsins í hálfa öld. Húnavökuritið er menningarauki í hérað og ég þakka þeim sem að því standa því hér er vel að verki staðið.
Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hér um slóðir láti sér detta í hug að hér rísi álver í náinni framtíð, nema þá kannski þeir sem sitja hér í sveitarstjórn samanber viðtal við einn slíkan í Mogganum fyrir skemmstu. Hann lét á sér skilja að helsta og brýnasta málið sem unnið væri að í bæjarstjórn væri að fá hingað álver. Nú virðist sem að vinnan við gagnaver sé hætt og áherslan lögð á álver í staðin. Það hefði nú ekki verið ónýtt að fá hingað gagnaver Facebook sem allt útlit er fyrir að rísi á næstunni í Óðinsvéum í Danmörku. Það er spurning hvort við erum alltaf að veðja á vitlausan hest? Nú lýsti fjármálaráðherra því yfir í viðtali nýverið að hann sæi ekki fyrir sér að álverum á Íslandi mundi fjölga í framtíðinni. Þar höfum við það. Við vitum hvernig gengur með stóriðjuna í Helguvík og svo sýnist allt vera að sigla í strand á Bakka. Það er ekki gott við að eiga þegar ekki má lengur virkja og því síður flytja rafmagn milli landshluta.
Maður ársins 2015 launar okkur Húnvetningum vel fyrir titilinn og sýnir nú og sannar að hann var vel að honum kominn. Hann birtir hverja myndina af annarri héðan af svæðinu ýmist á Facebook-síðu sinni, Facebook-síðu Blönduósbæjar eða á flickr.com síðu sinni. Nú lætur hann sér ekki nægja að standa á jörðinni við myndatökurnar, heldur sendir myndavélina upp í himinn og myndar þaðan. Ég veit að þessar myndir sem gleðja okkur heimamenn, gleðja líka brottflutta Húnvetninga fyrir nú utan hversu miklar heimildir eru þarna fólgnar. Ég veit líka að ég mæli fyrir munn margra þegar ég þakka Róbert fyrir að lofa okkur að njóta myndanna sinna og minni alla á að skoða ljósmyndasýningu hans sem opnuð verður á næstu dögum og í íþróttahúsinu.
Einu sinni voru við hreppur, svo urðum við bær og nú erum við víst orðin sveitarfélag. Ennþá heitum við Blönduósbær á heimasíðu bæjarins og væri gaman að vita í hvers konar sveitafélagi við eiginlega búum. Einnig hvað svona hringlandaháttur þýðir og hver sé tilgangurinn.
Ekki vissi ég að grænmetisrækt væri hafin hjá SAH-Afurðum og byrjuð væri uppskera á spergilkáli. Samanber fyrirsögn á frétt hérna á Húnahorninu 4.október síðastliðinn. Verð þó að viðurkenna að ég hef aldrei matreitt hrossaspergil og veit ekki hvernig hann lítur út, en gaman væri að prófa. Þessi venjulegi er nokkuð góður í kjötrétti og súpur og ég bíð spenntur eftir að hrossaspergill komi í búðirnar.
Njótum haustsins kæru vinir og ver kát og hress.
Kveðja Nöldri.
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
|
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
|
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
|
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:16
Stjórn meistaraflokks Kormáks Hvatar og veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga hafa skrifað undir samning um að Hvammstangavöllur í Kirkjuhvammi beri nafn Sjávarborgar í sumar. Þetta er fyrsta sinn sem knattspyrnuvöllurinn ber nafn styrktaraðila, að því er segir á Aðdáendasíðu knattspyrnuliðsins Kormáks-Hvatar á Facebook. Í sumar fara fjórir meistaraflokksleikir fram á Sjávarborgarvellinum, auk leikja í yngri flokkum.
|
Fréttir | 12. apríl 2024 - kl. 13:25
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu var haldinn í vikunni og að því er fram kemur á facebooksíðu félagsins var mæting félaga mjög góð, bæði hjá gömlum og nýjum. Þar segir að starf félagsins gangi mjög vel sem og rekstur þess. Húsnæði félagsins hafi tekið til sín mikinn tíma félaga en nú sé markmiðið að efla starfið enn frekar. Ný stjórn var kosin á fundinum og var þeim sem stigu til hliðar færðar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
|
Fréttir | 11. apríl 2024 - kl. 15:20
Ekki liggur fyrir hvenær boðað verður til íbúakosninga um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar en til stóð að hún færi fram í þessum mánuði og að sameining tæki gildi 1. júní næstkomandi, yrði hún samþykkt. Samstarfsnefnd um sameininguna, sem skipuð er átta fulltrúum, fjórum frá hvoru sveitarfélagi, hefur það verkefni að skipuleggja sameiningarvinnuna, m.a. að setja upp verk- og tímaáætlun og leggja fram sameiningartillögu.
|
Fréttir | 11. apríl 2024 - kl. 14:48
Kvenfélagið Freyja færði nýverið Grunnskóla Húnaþings vestra hjartastuðtæki að gjöf. „Gjöfin mun vonandi aldrei koma að notum en við erum þó svo þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem er mikilvæg viðbót í öryggisbúnað skólans,“ segir á vef hans. Höfðaskóli á Skagaströnd fékk líka gjöf nýverið, frá foreldrafélagi skólans, en það voru tvær tifsagir, „sem munu koma sér vel líkt og styrkurinn til bókakaupa gerði í haust,“ segir á vef skólans.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |