Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:36 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Það líður á góuna og sólin blessuð hækkar á lofti en félög Húnvetninga og U3A ætla að nota komandi vikur og efna til fundaraðar í Húnabúð næstu miðvikudaga, sjá veffang hér neðar en fyrstu vísur í stökuspjallinu koma frá Vatnsnesingnum Valda Kam.:
Glímutökin traust má sjá
til þín Jökulskynið slynga.
Titra stökutónar á
tjaldaþökum Vatnsdælinga.
Jökull er söguhetja í Vatnsdæla sögu og nafn hans fellur dável að innríminu. Gangnamanna blæ hefur vísan yfir sér. Ofan af heiðum og út á flóa höldum við með hinu myndvísa skáldi:
Borgar lampaljósum frá
léttum glampabrotum
aldan hampar úti hjá
Ægi kampavotum.
Borgfirðingurinn og plægingamaðurinn Steinbjörn frá Háafelli fékk hlýja kveðju:
Mörgum rétt þú hefur hönd
að hrinda Grettistaki.
Blómum fléttuð litfríð lönd
liggja slétt að baki.
Valdimar á Ægissíðu orti líka hestavísur:
Rís frá Ósi reiðmanns hrós
reykir gjósa úr tröðum
þegar Mósa loga ljós
lífs á rósablöðum.
Annan skáldmæltur Húnvetningur verður einnig kallaður fram í þessu spjalli en sá lét sér ekki duga að smíða vísur, heldur safnaði hann stökum af blöðum og bókum í margar möppur. Sigurður frá Selhaga, öldungur á Akureyri kvað:
Lífs á svæði lán mig bjó
lítt að gæðum sínum.
Hálfáttræður finn ég fró
er fletti ég skræðum mínum.
Til Akureyrar fluttu foreldrar hans, Sólveig ljósmóðir og Halldór Hjálmarsson árið 1924 og þar ílentist Sigurður. Hann gaf vísnasafn sitt til Skjalasafnsins á Blönduósi. Sigurður var fæddur á Hjallalandi 1898, flutti með foreldrum austur yfir Blöndu 1905 þar sem fjölskyldan bjó lengst af uppi á Skörðum, á afskekktasta býlinu í hreppnum, Selhaga. Þá var reyndar aflögð búseta í Rugludal fram við Blöndugil. Selhagi á Skörðum var fimm hundraða kot upp frá fjallajörðinni Þverárdal. Lengur var búið á annarri jörð á Skörðunum, sem var Kálfárdalur.
Endurlifnar æskuþrá
oft það dæmin sanna
er ég heyri hljóma frá
hörpu minninganna.
Sigurður orti um hörpu minninganna og árin sín 84:
Ellin herðir átök sín
um það raula´ eg bögur
og liðnu æviárin mín
84.
Sigurður var nær hálftíræður þegar hann lést 3. apríl 1993. Móðir hans kom vestan úr Arnarfirði á Kvennaskólann á Ytri-Ey og fór síðar suður að læra ljósmóðurfræði eftir að elsta barn hennar, Sigurður fæddist og þau Halldór giftust en það dugði fjölskyldunni ekki til að komast að framtíðarjarðnæði. Þannig varð saga fleiri húsmennskufjölskyldna. Nágranni Selhagafólks, Pétur í Vatnshlíð skrifaði ljósa og fræðandi grein um Sólveigu í Íslenskar ljósmæður III.
PS. Munum eftir Húnabúð á miðv.d. 1. mars kl. 17 þar sem við fáum að líta: Lárus Ægi, Tómas Gunnar og Sigurð Ágústsson á H 10.
Húnvetnsk fræði í Húnabúð: http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=13553
Valdimar K. Benónýsson Ægissíðu: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?ID=15241
Sigurður frá Selhaga: http://stikill.123.is/blog/2017/02/24/761266/
Vísur Sigurðar: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?U=s0&ID=18178&ut=1
Ingi Heiðmar Jónsson
Fréttir | 28. mars 2024 - kl. 09:02
Páskarnir eru ein mesta hátíð kristinna manna. Þá er krossfestingar Krists og upprisu hans minnst. Þessi merki boðskapur hefur táknræna merkingu ekki síður en sögulega. Margir nota hátíðina til samvista með sínum nánustu, vinum og/eða ættingjum, sumir leggjast í ferðalög en aðrir njóta einfaldlega þess að vera til. Svo eru þeir sem sinna helgihaldi um páska og rækta trú sína og innri mann.
|
Fréttir | 27. mars 2024 - kl. 18:35
Íbúar í Húnaþingi vestra geta valið milli fimm tillagna að slagorði fyrir sveitarfélagið, sem lýstir kjarna samfélagsins og hægt er að nota í kynningarskyni. Síðastliðið haust framkvæmdi Háskólinn á Bifröst íbúakönnun og var fólk m.a. beðið um að koma með hugmyndir að slagorði fyrir Húnaþing vestra. Nokkrar tillögur bárust og hafa nú fimm verið valdar til að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
|
Pistlar | 27. mars 2024 - kl. 09:06
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Mamma/Sigríður Ỏlafsdóttir, fæddist á Mörk eins og Ingimar Guðmundur, bróðir hennar og til Laxárdalsins óf hún sterka tryggð, fjölskyldan átti þar og eignaðist góða granna, þar á meðal eldri hjónin í Mjóadal, Ingibjörgu og Guðmund Erlendsson hreppstjóra. Það var tekið vel á móti gömlum sveitungum þegar amma og afi fluttu úr Hegranesinu 1917.
|
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 14:48
Hjá Biopol á Skagaströnd hafa verið gerðar tilraunir til að nýta kjöthluta grásleppunnar til framleiðslu á matvöru og verða afurðirnar kynntar á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í næsta mánuði, að því er fram kemur á vef Fiskifrétta. Haft er eftir Halldóri G. Ỏlafssyni, framkvæmdastjóra Biopol, að gerðar hafi verið tilraunir með kald- og heitreykingu grásleppuflaka og þurrkun á grásleppuhveljum með það fyrir augum að bjóða hana sem valkost í gæludýrafóður.
|
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 14:11
Byggðarráð Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um að loka Pósthúsinu á Hvammstanga, sem hafi í för með sér niðurlagningu á 2,5 stöðugildi. Ákvörðunin rýri samkeppnishæfni fyrirtækja sem selji vörur í vefverslun á svæðinu þar sem aðgengi að þjónustu geti haft áhrif á afgreiðsluhraða. Þetta kemur fram í bókun byggðarráðs frá fundi þess í gær.
|
Fréttir | 26. mars 2024 - kl. 09:28
Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman í hörðum árekstri á hringveginum við bæinn Enniskot í Húnaþingi vestra síðdegis í gær en lögreglan fékk tilkynningu um slysuð rétt fyrir klukkan 17. Í tilkynningu frá henni segir að tvennt hafi verið í hvorri bifreið og að tveir hafi verið fluttir slasaðir með sjúkraflugi frá Blönduósflugvelli til Reykjavíkur, og tveir með sjúkrabifreið. Ekki sé hægt að segja til um meiðsl fólksins að svo stöddu.
|
Fréttir | 25. mars 2024 - kl. 14:58
Í byrjun júní eru fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu á fjórum stöðum á Norðurlandi. Til stendur að loka pósthúsunum á Hvammstanga, Siglufirði og Dalvík og samstarfspósthúsinu í Ỏlafsfirði. Nú verða sendingar afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum. Þegar eru komin póstbox á Hvammstanga og Dalvík en í næsta mánuði verða sett upp box í Ỏlafsfirði og á Siglufirði. Þetta kemur fram á vef Íslandspóst.
|
Tilkynningar | 25. mars 2024 - kl. 14:17
Frá stjórn Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi
Stjórnarfundur var haldinn þann 21. mars hjá Hollvinasamtökum HSB. Eftir fundinn mættu sannkallaðir gleðigjafar, en það var stjórn Styrktatsjóðs A-Hún. þau Valgarður Hilmarsson formaður, Erla Ísafold Sigurðardóttir og Sigríður Eddý Jóhannesdóttir. Færðu þau samtökunum rausnarlega gjöf kr: 500.000 upp í kaup á þrekhjóli fyrir skjólstæðinga 3. og 4. hæðar.
|
Fréttir | 24. mars 2024 - kl. 12:09
Út er komin bókin Þessi frægu glæpamál: Morðin á Sjöundá og Illugastöðum. Það eru Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ og Húnvetningurinn Jón Torfason, fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands sem rita ítarlegan inngang og tóku saman heimildir sem eru gefnar út í heild sinni í fyrsta sinn í þessari bók. Útgefendur eru Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og Háskólaútgáfan.
|
Pistlar | 24. mars 2024 - kl. 09:47
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
Eftir flutning Sveins Halldórssonar að Hnjúkum 1809 bjuggu Halldór Jónsson og Guðrún Jónsdóttir kona hans áfram í Köldukinn til 1811 en í stað Sveins kom nýtt sambýlisfólk um tveggja ára skeið (1809-1811). Það voru Jón Jónsson (um 1740-1816) og Jarþrúður Jónsdóttir (1748-20. ágúst 1825), höfðu lengi búið á Miðgili í Langadal og fluttu héðan að Engihlíð þar sem Jón lést 1816.
|
Pistlar | 22. mars 2024 - kl. 10:25
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Horfinn er þangað hugurinn. Hrakningar, leitir, villa / ónáða byggðamanninn minn / mögnuðum kitlum fylla. Horfinn er þangað hugurinn, / hvenær sem gengur illa. Sigurður gaf út tvær ljóðabækur, Sandfok 1940, Rætur og mura 1955, en ferða- og hestabækur skrifaði hann líka og fyrst hreif hann mig með bók sinni Einn á ferð og oftast ríðandi.
|
Fréttir | 22. mars 2024 - kl. 10:02
Ekkert ferðaveður er á Norðurlandi vestra þessa stundina. Þæfingur, snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á svæðinu og víða hvasst. Holtavörðuheiði er lokuð vegna veðurs og verður staðan metin á hádegi. Ỏfært er um Laxárdalsheiði. Vatnsskarð er lokað vegna veðurs og þar eru bílar sem þvera veginn. Þverárfjall er lokað vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu Norðurlandi, sem og á Vestfjörðum, Breiðafirði og á Austurlandi að Glettingi.
|
Fréttir | 22. mars 2024 - kl. 09:13
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn ofbeldi og öðrum brotum, og um bættrar þjónustu fyrir jaðarsetta hópa, undir heitinu Öruggara Norðurland vestra, hefur verið undirrituð af Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra, Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, sveitarfélögunum Húnaþingi vestra, Húnabyggð, Skagabyggð Skagaströnd og Skagafirði, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi, Heilbrigðisstofnunum Norðurlands og Vesturlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og ungmennasamböndunum USAH, USVH og UMSS.
|
Fréttir | 21. mars 2024 - kl. 15:41
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á þriðjudaginn og sá Hestamannafélagið Þytur um skipulagningu þess. Á þinginu var Sveinbjörg Rut Pétursdóttur kjörin nýr formaður USVH til tveggja ára en hún tekur við af Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur sem setið hefur sem formaður síðastliðin fjögur ár. Þá var nýr meðstjórnandi kjörinn til tveggja ára, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, en hún tekur við af Elísu Ýr Sverrisdóttur.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |