Brass Con Brio. Mynd: Skagaströnd.is
Fréttir | 17. september 2014 - kl. 07:51
Sænska blásarasveitin Brass Con Brio heldur tónleika í Hólaneskirkju fimmtudaginn 18. september og hefjast þeir klukkan 17:30. Brass Con Brio er átta manna hljómsveit nemenda í Menningarskóla Växjöbæjar sem er vinabær Skagastrandar. Hljómsveitarmeðlimir eru á aldrinum 15-18 ára og spila tónlist allt frá sígildum verkum til pop og rokktónlistar.
Þegar sveitin leikur rokktónlist sest einn af trompetleikurunum við trommusettið og gítarkennari skólans leikur á rafmagnsgítar. Hljómsveitin er í tónlistarferð til Íslands og gerði sér sérstaka ferð til vinabæjarins Skagastrandar til að halda tónleika þar.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir.
Heimild: Skagastrond.is