Fréttir | 21. október 2014 - kl. 21:18
Foreldranámskeið á Blönduósi

Haldið verður foreldranámskeið á heilsugæslustöðinni á Blönduósi dagana 10., 12., 17. og 19. nóvember næstkomandi frá klukkan 17 til 19. Leiðbeinendur eru Sesselja Kristín Eggertsdóttir og Helga Hreiðarsdóttir, hjúkrunarfræðingar.

Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig hægt sé að:

  • Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika.

  • Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni.

  • Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu.

  • Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt.

  • Kenna börnum mikilvæga færni.

  • Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi.

Námskeiðið kostar kr. 9.300- á einstakling / 11.500- á par. Uppeldisbókin kr. 3.000-. Athugið að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaðinum. Skráning hjá Kristínu sími: 892 2584, netfang: sesselja.eggertsdottir@hve.is eða hjá Helgu sími: 864 8951, netfang: helga.hreidarsdottir@hve.is.  Skráning þarf að fara fram fyrir 1. nóvember.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga