Fréttir | 22. október 2014 - kl. 20:17
Spilakvöld í Húnavallaskóla

Föstudaginn 24. október næstkomandi halda nemendur í 9. og 10. bekk Húnavallaskóla spilakvöld í skólanum. Spiluð verður félagsvist og inn kostar 500 krónur að taka þátt. Verðlaun verða veitt fyrir stigahæstu spilara. Byrjað verður að spila klukkan 20:00. Sjoppa verður á staðnum og vonast nemendurnir til að sjá sem flesta. Enginn posi verður á svæðinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga