Fréttir | 23. október 2014 - kl. 12:28
Landskeppni smalahundafélags Íslands og dómaranámskeið á Blönduósi

Landskeppni smalahundafélags Íslands verður haldið á Vorboðavelli við Blönduós helgina 1.-2. nóvember. Keppt verður í A flokki, opinn flokkur og fyrir þá hunda sem hafa fengið 50 stig eða meira í B flokki, B flokki, fyrir hunda sem ekki hafa náð 50 stigum og unghundaflokki, fyrir hunda yngri en 3ja ára.

Dómari verður Mosse Magnusson frá Skotlandi og honum til aðstoðar kona hans Lotta. Keppnin hefst á unghundum laugardaginn 1. nóvember kl. 10:00. Skráningar fara fram hjá Bjarka í síma: 8480038 og Aðalsteini í síma: 8653910 fyrir fimmtudaginn 30. október.

Í tengslum við landskeppnina verður haldið dómaranámskeið föstudaginn 31. október frá kl. 13:00-17:00. Á námskeiðinu mun Mosse Magnusson fara ítarlega yfir keppnisreglur ISDS og fyrir hvað er dæmt í formi fyrirlesturs og sýnidæma á myndböndum. Nauðsynlegt er fyrir alla sem vilja að fá yfirsýn í störf dómarans jafnt keppendur sem og brekkudómara.

Skráning er hjá Bjarka í síma 8480038 í síðasta lagi miðvikudagskvöldið 29. október. Verð kr. 6.000.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga