Tilkynningar | 29. október 2014 - kl. 20:34
Halloween partý á Hótelinu
Tilkynning frá vertinum á hótelinu

Föstudaginn 31. október verður haldið alvöru Halloween partý á Hótel Blönduóss. Við hvetjum fólk til þess að mæta í skemmtilegum Halloween búningum og taka þátt í gleðinni. Hljómsveitin Trukkarnir ætla að halda uppi stuðinu fram eftir nóttu og að sjálfsögðu verða þeir í Halloween búningum.

Húsið opnar kl. 22:00 og aðgangseyrir verður einungis 1.000 kr. og aldurstakmark er 18 ár.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga