Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 19. nóvember 2014 - kl. 11:54
Ný Vínbúð opnar á Hvammstanga

Undanfarna daga hefur verið unnið að endurbótum á Vínbúðinni á Hvammstanga og hefur hún verið lokuð frá því á mánudaginn. Á morgun opnar ný og glæsileg Vínbúð klukkan 17:00. Hingað til hefur verið afgreitt yfir borð á Hvammstanga, en nýja búðin verður sjálfsafgreiðslubúð eins og nánast allar Vínbúðir eru í dag, að því er segir á vef ÁTVR. Vínbúðin verður þó enn á sama stað inn af byggingarvöruverslun Kaupfélagsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga