Gómsætur jólagjafapakki
Gómsætur jólagjafapakki
Fréttir | 25. nóvember 2014 - kl. 14:00
Húnvetnskt góðgæti í jólapakkann

Sem fyrr bjóða SAH Afurðir á Blönduósi uppá fjölbreytt úrval jólagjafa og má skoða úrvalið á vef fyrirtækisins. Þetta árið eru í boði fimm tegundir jólagjafapakka en í þeim má m.a. finna hátíðarkryddað lambalæri, hamborgarahrygg, hangi læri með beini og úrbeinaðan hangiframpart svo eitthvað sé nefnt. Að auki er boðið upp á stakar steikur í gjafapakkningum.

Á vef SAH Afurða má betur fræðast um þessar vörur sem og verð þeirra. Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir að leggja inn pöntun hjá SAH Afurðum í síma 455 2200, eða senda tölvupóst á sah@sahun.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga