Mynd: Hunavatnshreppur.is
Mynd: Hunavatnshreppur.is
Fréttir | 25. nóvember 2014 - kl. 20:35
Árshátíð Húnavallaskóla

Árshátíð Húnavallaskóla verður haldin næstkomandi föstudag og hefst hún klukkan 20:30 en húsið opnar hálftíma fyrr. Á dagskrá hátíðarinnar verða fjölbreytt skemmtiatriði eins og leiksýning, tónlistaratriði, veislukaffi og dansleikur.

Nemendur í 9. og 10. bekk  frumflytja leikritið HYSKIÐ sem þeir unnu með Guðjóni Sigvaldasyni sem leikstýrir. Eftir skemmtiatriðin verður hið rómaða veislukaffi. Svo verður dansað til klukkan 01:00.

Miðaverð (innifalið er kaffihlaðborð):
2.500 kr. fyrir 16 ára og eldri.
1.000 kr. fyrir 7-15 ára.
Frítt fyrir 6 ára og yngri.

Skólablaðið Grettistak verður selt á staðnum á 1.200 kr.

Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga