Tilkynningar | 22. desember 2014 - kl. 18:07
Um næstu áramót sameinast embætti sýslumannanna á Blönduósi og Sauðárkróki í embætti: Sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Sameiningin hefur ekki áhrif á opnunartíma eða þá þjónustu sem nú er veitt. Símanúmer embættisins verður 458-2500 og ný kennitala 660914-0990 og netfangið verður nordurlandvestra@syslumenn.is.
Hið nýja embætti mun taka til starfa mánudaginn 5. janúar 2015 en föstudaginn 2. janúar verður embættið lokað vegna umfangsmikilla tölvukerfiskerfisbreytinga hjá ríkinu vegna umdæmabreytinganna. Á þetta við um öll sýslumannsembætti landsins.
Sérstök athygli er vakin á því að ekki verður hægt að fá afhent vegabréf hjá sýslumönnum á tímabilinu frá hádegi á gamlársdag 31. desember 2014 til kl. 8:30 að morgni mánudagsins 5. janúar 2015.
Að lokum sendast íbúum embættanna á Sauðárkróki og Blönduósi bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á nýju ári.
Með bestu kveðju,
Bjarni Stefánsson, sýslumaður á Blönduósi og Sauðárkróki.