Fréttir | 24. janúar 2015 - kl. 15:47
SEEDS sjálfboðaliðar á Blönduós

Byggðaráð Blönduósbæjar hefur samþykkt samning milli sjálfboðaliðasamtaka SEEDS og Blönduósbæjar um að sjálfboðaliðar SEEDS taki þátt í umhverfisverkefnum í samstarfi við Blönduósbæ. Samningurinn felur í sér að átta til tíu sjálfboðaliðar á vegum samtakanna muni starfa meðal annars við íþróttamót, viðburði og umhverfisverkefni á Blönduósi í sumar.

 Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS hafa frá árinu 2005 tekið á móti yfir 6000 erlendum sjálfboðaliðum til þess að sinna fjölþættum verkefnum á sviði umhverfis- og menningarmála á Íslandi. SEEDS skipuleggur á hverju ári fjölda vinnubúða um allt land í samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og sveitarfélög.

Búðirnar standa allajafna í tvær vikur, oftast með þátttöku 8-12 sjálfboðaliða og hafa verkefnin verið mjög fjölbreytt. Hafa þau meðal annars falið í sér hreinsun strandlengjunnar á Langanesi, Arnarfirði, Reykjanesskaga og Viðey, gróðursetningu í Dýrafirði og Bláfjöllum, lagningu og viðhaldi göngustíga í Vatnajökulsþjóðgarði, Þórsmörk og Fjarðabyggð, aðstoð við ýmsar hátíðir og menningarviðburði víðs vegar um landið, viðhald minja og fornleifa og torfvinnu svo fátt eitt sé nefnt. Sjálfboðaliðar SEEDS hafa einnig tekið að sér óvænt verkefni, t.d. tóku hópar frá SEEDS þátt í hreinsunarstarfi eftir eldgosið í Eyjafjallajökli, að því er fram kemur á vef samtakanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga