Fréttir | 28. febrúar 2015 - kl. 09:00
Ísmót á Svínavatni í dag

Ísmótið Svínavatn 2015 verður haldið í dag og hefst  stundvíslega klukkan 11 á B-flokk, síða kemur A-flokkur og endað er á tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein. Ísinn er góður og skráningar eru tæplega 100. Ráslistar og aðrar upplýsingar og úrslit þegar þar að kemur eru birtar áheimasíðu mótsins is-landsmot.is.

Gott  hljóðkerfi og útvarpsútsending þar sem einkunnir verða kynntar jafnóðum.

Veitingasala á staðnum, heitir drykkir, samlokur, pylsur o.fl. Posi.

Einnig vönduð skrá með nánari upplýsingum.

Vegna góðs stuðnings styrktaraðila mótsins, er aðgangur ókeypis og allir hvattir til að koma

 og njóta þessarar mestu gæðingaveislu ársins á svæðinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga