Skjáskot af Mbl.is
Skjáskot af Mbl.is
Fréttir | 28. febrúar 2015 - kl. 22:20
Jeppi brann við Hnjúkabyggð

Á tíunda tímanum í kvöld kviknaði í jeppa sem stóð við blokkina að Hnjúkabyggð 27 á Blönduósi. Jeppinn er gjörónýtur en slökkviliðið tókst að fjarlægja jeppann frá blokkinni áður en eldur barst í hana og engin slys urðu á fólki, að því er fram kemur á vef Mbl.is. Þar er haft eftir lögreglunni á Blönduósi að ekki hafi verið mikil hætta á ferðum en ákveðið hafi verið að draga jeppann frá blokkinni til öryggis. Eldsupptök eru ókunn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga