Mynd af Norðanátt.is
Mynd af Norðanátt.is
Fréttir | 26. mars 2015 - kl. 13:53
Öfugu megin uppí

Leikdeild Ungmennafélagsins Grettis í Miðfirði frumsýnir farsann „Öfugu megin uppí“ þriðjudagskvöldið 31. mars næstkomandi í félagsheimilinu Ásbyrgi og hefst sýning klukkan 21:00. Leikritið segir frá Friðþjófi, sem tekur að sér að gæta sveitahótels systur sinnar á meðan hún bregður sér í frí. En það á ekki fyrir honum að liggja að eiga náðuga daga þar, því svo undarlega vill til að tvö pör hafa ákveðið, hvort í sínu lagi, að gera sér glaðan dag og enn glaðari nótt á þessu sama hóteli.

Leikstjóri er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir en hún stýrði síðustu sýningu félagsins árið 2011.

Einnig verða sýningar miðvikudagskvöldið 1. apríl og föstudagskvöldið 3. apríl.

Miðaverð er 2.500 krónur og er posi á staðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga