Tilkynningar | 23. júlí 2015 - kl. 19:32
Húnavakan 2015 – Þakkir
Frá skipuleggjendum Húnavöku

Þá er Húnavökunni árið 2015 lokið og langar okkur skipuleggjendum hátíðarinnar að koma á framfæri þökkum til bæjarbúa, þeim fyrirtækjunum sem styrktu hátíðina og gerðu okkur kleift að bjóða uppá fjölbreytta og vonandi skemmtilega dagskrá, gestum Húnavökunnar fyrir að mæta og síðast en ekki síst til þeirra fjölmörgu aðila sem stóðu fyrir og aðstoðuðu við hina ýmsu viðburði sem haldnir voru.

Við hefðum að sjálfsögðu viljað hafa veðrið betra en það er samt álit okkar að viðburðir hátíðarinnar voru flest allir vel sóttir þrátt fyrir það.

Það er í þessu eins og öðru að það má alltaf gera betur með einhverja hluti og eru allar ábendingar þess efnis vel þegnar á netfangið hunavakan@gmail.com.

Takk fyrir okkur og sjáumst á Húnavökunni 2016

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir
Eysteinn Pétur Lárusson
Skipuleggjendur Húnavökunnar

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga