Tilkynningar | 27. júlí 2015 - kl. 08:37
Kaffihlaðborð um verslunarmannahelgina
Frá húsfreyjunum í Hamarsbúð

Kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti
að hætti Húsfreyjanna verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 1. og sunnudaginn 2. ágúst næstkomandi. Opið verður á milli klukkan 14 og 18 báða dagana. Regína Ólína Berndsen Þórarinsdóttir sýnir ljósmyndir.

Verð kr. 2000 fyrir 13 ára og eldri, en kr. 1000 fyrir 6 - 12 ára.

Verið velkomin í Hamarsbúð, Húsfreyjur.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga