Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Fréttir | 27. júlí 2015 - kl. 16:08
Ófleygar gæsir á götum bæjarins

Lögreglan á Blönduósi hefur nokkrar áhyggjur af ófleygum gæsum sem eru á rölti um bæinn en stór hluti þeirra eru ungar gæsir sem fæddar eru í Hrútey við Blöndu. Lögreglan vill koma þeim upplýsingum á framfæri við ökumenn að þeir sýni aðgát í akstri þar sem gæsirnar eiga það til að rölta út á götu og því nauðsynlegt að vera við öllu búinn.

Það óhapp varð við hringtorgið í gær að ökumaður sem var að koma inn í bæinn lenti inni í miðjum gæsahópi og eftir lágu 26 gæsir, bæði dauðar og skaddaðar sem þurfti að aflífa.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga