Baldur heiðursfélagi GS og Jóhanna formaður GS
Jón Jóhanns og Jóhanna G. Jónasd.
Fréttir | 03. september 2015 - kl. 17:15
Golfklúbburinn Ós á Blönduósi og Golfklúbbur Skagastrandar fagna 30 ára afmæli í ár og af því tilefni héldu golfklúbbarnir sameiginlegt afmælismót sunnudaginn 30. ágúst og var spilað á báðum völlunum. Fyrri níu holurnar á Háagerðisvelli og síðari níu á Vatnahverfisvelli. Spilað var Texas Scramble. Klúbbarnir buðu upp á blíðskaparveður og voru 34 golfarar sem tóku þátt.
Að loknu móti var boðið til afmælishófs á Ömmukaffi þar sem verðlaun voru veitt. Í tilefni tímamótanna var Baldur Valgeirsson gerður að heiðursfélaga GÓS og Jón Jóhannsson heiðraður fyrir vel unnin störf í þágu GÓS frá stofnun hans.
Stjórnir GÓS og GSK vilja þakka öllum keppendum fyrir komuna og Vilko fær sérstakar þakkir fyrir að styrkja mótið.
Myndirnar tók Valgeir M. Valgeirsson.