Tilkynningar | 24. nóvember 2015 - kl. 22:00
Fjáröflun á Jólamarkaði
Frá kvenfélagskonum

Kvenfélag Svínavatnshrepps ætlar að vera með fjáröflun á Jólamarkaði Húnavers laugardaginn 28. nóvember næstkomandi klukkan 14:00.  Í boði verður nýsteiktar kleinur, partar, gott í poka, glæsifatnaður af ýmsu tagi, brjáluð tombóla og engin núll.  Allur ágóði rennur beint til Jólasjóðs Rauða krossins í Austur-Húnavatnssýslu.

Við hvetjum alla til að mæta á skemmtilegan markað og styrkja gott málefni í leiðinni. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga