Fréttir | 25. nóvember 2015 - kl. 09:22
Ríflega 100 milljónir til eflingar atvinnu

Ríflega eitt hundrað milljónum króna verður varið til eflingar atvinnu á Norðurlandi vestra ef breytingartillögur ráðuneytanna við fjárlagagerðina, sem nú er í vinnslu á Alþingi, ná fram að ganga. Farið verður af stað í nokkur verkefni sem svokölluð Norðvesturnefnd lagði til í skýrslu til forsætisráðherra sem lið í að efla byggð og atvinnutækifæri í landshlutanum. Engar tillögur nefndarinnar voru inni í fyrstu gerð fjárlaga. Sagt er frá þessi í Fréttablaðinu í dag.

Formaður byggðaráðs Skagafjarðar, Stefán Vagn Stefánsson, var formaður Norðvesturnefndarinnar. Auk Stefáns Vagns sátu í nefndinni Héðinn Unnsteinsson frá forsætisráðuneytinu, Sigríður Svavarsdóttir frá sveitarfélaginu Skagafirði, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, og Valgerður Hilmarsdóttir, forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar. Ásmundur Einar Daðason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, starfaði einnig með nefndinni.

Stefán Vagn segist í samtali við Fréttablaðið í dag vera nokkuð ánægður með það sem hann sjái í kortunum. „Svo virðist sem nokkur verkefni séu að verða að veruleika sem er ánægjuefni fyrir landshlutann,“ segir Stefán Vagn.

Í Fréttablaðinu kemur fram að setja eigi tíu milljónir króna í bíódísilframleiðslu á Blönduósi, þrjátíu til viðbótar í frumkvöðlasetur í tengslum við Biopol ehf., 45 milljónir fari í eflingu selarannsókna í landshlutanum auk þess sem nýsköpunar- og frumkvöðlasetur á Sauðárkróki fái 14 milljónir. Annar sjóður, atvinnu- og nýsköpunarsjóður á Norðurlandi vestra, fái 10 milljónir.

Að endingu muni svo Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga fá 35 milljóna króna framlag til að ráða starfsfólk svo hægt sé að fullnýta húsnæði stofnunarinnar. Aldraðir og veikir einstaklingar í nágrenni við Hvammstanga hafi þurft upp á síðkastið að leggjast inn í hvíld í Stykkishólmi, á Akranesi eða í Reykjavík, fjarri heimahögum og fjölskyldum.

Átta tillögur nefndarinnar fjölluðu um flutning opinberra starfa. Þar var um að ræða tæplega 90 stöðugildi. Svo virðist sem þær tillögur hafi ekki náð fram að ganga, að því segir í Fréttablaðinu í dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga