Fréttir | 29. apríl 2016 - kl. 11:55
Sókn til nýrra sigra “ 1. maí hátíð á Blönduósi

Verkalýðsdagurinn, 1. maí, verður haldinn hátíðlegur á Blönduósi á sunnudaginn undir yfirskriftinni Sókn til nýrra sigra. Hátíðarhöldin hefjast í Félagsheimilinu klukkan 15:00 og verða kaffiveitingar í boði Stéttarfélagsins Samstöðu sem USAH sér um að venju. Ræðumaður dagsins verður Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar-stéttarfélags í Þingeyjasýslum.

Skarphéðinn Einarsson og hulduherinn hans munu sjá um tónlistaratriði og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur nokkur lög undir stjórn Sveins Árnasonar. Þá verður bíósýning fyrir börnin.

Góðar veitingar, góð dagskrá og allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga