Fréttir | 05. maí 2016 - kl. 09:37
Guðþjónusta verður í Blönduóskirkju, á kirkjudegi aldraðra, í dag uppstigningardag og hefst klukkan 14:00. Kórar Blönduóskirkju og Hólaneskirkju syngja undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner og Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur.
Prestar verða Sr. Bryndís Valbjarnardóttir og Sr. Sveinbjörn Einarsson. Ræðumaður verður Sr. Flóki Kristinsson, sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli.