Fréttir | 02. maí 2016 - kl. 21:40
Elduðu og framreiddu af stakri snilld

Nemendur í 10. bekk Höfðaskóla héldu matarkvöld 20. apríl síðastliðinn á veitingastaðnum Borgin mín á Skagaströnd. Kvöldstundin var liður í fjáröflun bekkjarins fyrir skólaferðalag sem farið verðu seinna í þessum mánuði og sáu nemendurnir um alla eldamennsku, framreiðslu og frágang.

Matseðill kvöldsins var þannig að í forrétt voru sítrónumarineraðir sjávarréttir með grænmeti, aðalrétturinn var lambalæri með fjölbreyttu rótargrænmeti og sósu og í eftirrétt var ostakaka. Allar þessar krásir framreiddu nemendur af stakri snilld með aðstoð Þórarins kokks á veitingastaðnum.

Nemendurnir vilja þakka Þórarni á Borginni fyrir dyggan stuðning. Þá fá fyrirtækin SAH Afurðir, KS Afurðastöð, Ekran, MS, Samkaup-Úrval og Ölgerðin miklar þakkir fyrir veittan stuðning.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga