Fréttir | 29. júní 2016 - kl. 11:37
Vilja brenna sinn eigin sláturúrgang

SAH Afurðir ætla að setja upp búnað við sláturhúsið á Blönduósi til eyðingar á áhættuvefjum úr sláturdýrum. Um er að ræða brennsluofn sem komið verður fyrir í gámi og verður hann eingöngu notaður til brennslu sláturúrgangs sem til fellur hjá fyrirtækinu, allt að 250 tonnum á ári. Drög að breyttum starfsleyfisskilyrðum fyrir sláturhús SAH á Blönduósi vegna starfrækslu brennsluofnsins liggja frammi á skrifstofu Blönduósbæjar og á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

Í auglýsingu frá heilbrigðiseftirlitinu eru þeir sem telja sig málið varða hvattir til að kynna sér starfsleyfisskilyrðin og gera athugsemdir við þau ef þurfa þykir. Skriflegar athugasemdir skulu hafa borist til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra í síðasta lagi fyrir 20. júlí næstkomandi.

Skipulagsstofnun hefur gefið samþykki sitt fyrir uppsetningu á búnaðinum. Telur stofnunin að mengun frá útblæstri frá ofninum verði lítil sem og ónæði af völdum hans. Veldur þar mestu að umfang afurða til brennslu er fremur lítið eða undir 250 tonnum á ári og er eingöngu bundið við þann úrgang sem fellur til hjá sláturhúsi SAH Afurða ehf. Þá telur stofnunin að fyrirhuguð uppsetning á ofninum sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif með tilliti til eðlis framkvæmdarinnar, staðsetningar hennar og eiginleika hugsanlegra áhrifa hennar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga