Fréttir | 24. september 2016 - kl. 13:18
Æfingar að hefjast hjá kirkjukór Blönduóskirkju

Kirkjukór Blönduóskirkju hefur æfingar á nýju starfsári miðvikudaginn 28. september nk. en æfingar undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista verða alla miðvikudaga kl. 20 – 22 í vetur. 

Framundan er spennandi vetur með margs konar samstarfi og uppákomum. Sú fyrsta er strax sunnudaginn 1. október en þá mun Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri kirkjunnar, koma á Blönduós og hafa sameiginlegan kóradag fyrir kirkjukóra í A-Hún og Húnaþingi vestra.

Þetta er góð byrjun á vetrinum og tilvalið fyrir áhugasama að byrja starfið svona því allir mæta jafn ókunnugir því sem Margrét mun bjóða uppá.

Nýir félagar eru velkomnir í þennan góða félagsskap.

 

Höf. mbb

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga