Tilkynningar | 25. september 2016 - kl. 21:30
Textílsýning í Bílskúrsgalleríinu

Þriðjudaginn 27. september ætla listamenn september mánaðar hjá Textílsetri Íslands á Blönduósi að bjóða til sýningar í Bílskúrsgalleríinu við Kvennaskólann og hefst hún klukkan 17. Það eru listamennirnir Melina Bishop, Kevin Lowenthal, Anna Taylor, Asa Norman, Kate Ruddle, Guðný Ragnarsdóttir, Whitefeather Hunter, Maxime Noilou, Reynir Katrínar, Vanessa Falle, Kristina og Dave Danehower sem standa að sýningunni.

Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga