Fréttir | 20. október 2016 - kl. 08:03
Menningarkvöld í Blönduóskirkju

Svavar Knútur, söngvaskáld og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,rithöfundur og söngvaskáld bjóða Blönduósingum og nærsveitungum til menningarkvölds í Blönduóskirkju með ljóðalestri, sögum og skemmtilegri tónlist, sunnudagskvöldið 23. október næstkomandi.

Vinirnir eru staddir í Húnavatnssýslu til að flytja dagskrá fyrir grunnskólanema um Tómas Guðmundsson og þótti þeim Blönduósbær liggja vel til höggsins.

Svavar Knútur gaf í fyrra út plötuna Brot, sem hefur hlotið frábæra dóma, en fyrir liggja eftir hann plöturnar Kvöldvaka, Amma og Ölduslóð, sem allar hafa notið mikilla vinsælda. Svavar hefur undanfarin ár getið sér gott orð fyrir skemmtilega blöndu af húmor og einlægni og fyrir að blanda saman gamalli þjóðlagahefð og nútímalegri stemmningu.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur gefið út fjölda ljóðabóka, barnabóka, barnaplatna og hljómplatna á sviði þjóðlagatónlistar. Hann hefur einnig þýtt fjölda ljóðabóka eftir erlenda höfunda og verið ötull í alþjóðlegu samstarfi rithöfunda, skálda og tónlistarmanna á norðurslóðum.

Menningarkvöldið hefst klukkan 20:00 og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Aðgangur er ókeypis fyrir börn og unglinga.

Viðburðinn má finna á Facebook: https://www.facebook.com/events/1799338490337137/

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga