Ljósm: esv.blog.is
Ljósm: esv.blog.is
Fréttir | 21. október 2016 - kl. 09:43
Námskeið um veðurfræði og útivist

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, verður með námskeið um veðurfræði og útivist í Samstöðusalnum á Þverbraut 1 á Blönduósi miðvikudaginn 26. október frá klukkan 18 til 22. Kennd verða áhrif fjalla og landslags á veður, einkum vinda, úrkomu og skýjafars. Farið er í megineinkenni veðurfars á Íslandi á öllum árstímum, hvernig hiti og vindur breytist með hæð. Þá er fjallað um jöklaveðráttu, skafrenning og megingerðir þoku.

Leiðbeiningar eru gefnar um aðgengilegar veðurspár, hverjar gagnast vel og hverjar síður fyrir ferðalanga í misjöfnu veðri.

Í auglýsingu um námskeiðið kemur fram að Samstaða, SFR og Kjölur greiða námskeiðið fyrir sína félagsmenn. Skráning á farskolinn@farskolinn.is eða í síma 455 6010.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga