Fréttir | 20. mars 2017 - kl. 10:42
Bó og meira til í Blönduóskirkju

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps heldur tónleika í Blönduóskirkju í kvöld klukkan 20:30 undir yfirskriftinni „Bó og meira til“. Með kórnum er hljómsveit Skarphéðins Einarssonar og einsöngvararnir Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Guðmundur Rúnar Halldórsson, Rúnar Pétursson og Brynjólfur Friðriksson. Flutt verður blanda af hefðbundinni karlakórstónlist og svo lögin hans Björgvins Halldórssonar.

Miðaverð er 3.000 krónur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga