Tilkynningar | 20. mars 2017 - kl. 10:41
Aðalfundur Hollvinasamtaka HSN á Blönduósi
Tilkynning frá stjórn

Aðalfundur Hollvinasamtaka HSN á Blönduósi verður haldinn mánudaginn 24. apríl í fundarsal HSN á annarri hæð. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar, skráning nýrra félaga, gerð grein fyrir tækjaþörf og önnur mál.

Nýir hollvinir sérstaklega boðnir velkomnir.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga