05. febrúar 2016 - kl. 20:00 - 05. febrúar 2016 - kl. 23:00

Skvísukvöld á Borginni

Staðsetning:

Borgin Skagaströnd

Það verður frábær dagskrá fyrir allar skvísur á Borginni næstkomandi föstudagkvöld og við hvetjum alla saumaklúbba, vinahópa, vinnufélaga, já bara allar konur að mæta og eiga ánægjulega stund saman.

Það er sniðugt að mæta snemma, því Borgarstjórinn verður með tilboð frá 18 - 20 á æðislegu kjúklingasalati og hvítvínsglasi á 2.500 kr. Dagskráin hefst svo upp úr kl. 20.00.

Litla Skvísubúðin heldur tískusýningu og þú getur gert góð kaup á nýjustu vörunum eða svaka góð kaup á útsöluvörum!

Jóhanna Karls ætlar að vera með prjónuðu listaverkin sín sem enginn verður svikinn af.

Kastalinn verður með úrval af flottum og skemmtilegum vörum. Frábært tækifæri til að sinna næstu gjafakaupum eða bara gera vel við sig.

Ekki má gleyma leikjunum og happdrættinu þar sem gefnir verða flottir vinningar.

Á laugardaginn verður einnig hægt að versla frá 12 - 15 í Borginni af Skvísubúðinni og Kastalanum.

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga