29. maí 2018 - kl. 20:00 - 29. maí 2018 - kl. 22:00

Aðalfundur Húnvetningafélagsins

Staðsetning:

Húnabúð, Skeifunni 11a í Reykjavík

Aðalfundur Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður haldinn í Húnabúð, Skeifunni 11a í Reykjavík, þriðjudaginn 29. maí næstkomandi klukkan 20:00. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins. Formaður mun m.a. gera grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári og féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins. Dagskrá fundarins er þessi í heild sinni: Formaður gerir grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári. Féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins. Skýrsla nefndar og starfsmanna félagsins. Kosningar. Önnur mál.

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga