20. mars 2024 - kl. 16:30 - 20. mars 2024 - kl. 18:30

Fróðleiksmolar með kaffinu: Jökull, gróður og fuglar við Blöndu

Staðsetning:

Félagsheimilið Blönduósi

Rannsóknir og vaktanir eru mikilvægir þættir í ábyrgri orkuvinnslu og er Landsvirkjun engin undantekning í þeim efnum. Um allt land er verið að skoða áhrif af starfsemi okkar og undirbúa verkefni framtíðarinnar. Til verður þekking sem við viljum miðla til almennings og því bjóðum við í kaffi í félagsheimilinu á Blönduósi. Með kaffinu verður bakkelsi og þrír gómsætir molar:

  1. Geta vindmyllur á Blöndusvæði haft áhrif á fugla? – Fuglarannsóknir á Steinárhálsi
    Þorkell Lindberg Þórarinsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands
  2. Virkar þetta? - Uppgræðsla á Eyvindarstaðaheiði
    Ingunn Sandra Arnþórsdóttir héraðsfulltrúi Lands og skógar
  3. Er Blanda að breytast í bergvatnsá? - Jöklarannsóknir á vatnasviði Blöndu 
    Andri Gunnarsson verkefnisstjóri hjá þróun vatnsafls í Landsvirkjun

Húsið opnar með kaffiveitingum klukkan 16:30 og eru íbúar í nærsamfélaginu sérstaklega hvattir til að mæta. Dagskráin hefst svo klukkan 17 og er áætlað að hún standi til 18:30. Dagkránni verður streymt fyrir þau sem ekki eiga heimangengt og verður hlekkur á streymið auglýstur síðar.

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga