Fréttir | 22. október 2013 - kl. 09:56
Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings vestra á komandi
veiðitÃmabili hefur verið ákveðið. Þess er vænst að veiðimenn virði
fyrirkomulagið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt
gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.
Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings
vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2013:
1.
Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af
Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt
veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til
rjúpnaveiða á afréttarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar
leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.
Svæðin eru:
1. VÃðidalstunguheiði ásamt Króki, Stóru-HlÃð, Stóra-Hvarfi og Öxnatungu.
2. Arnarvatnsheiði og TvÃdægra.
2.
Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á
veiðitÃma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2013 og veitir
einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum
tÃma. Ekki er um að ræða sölu á dagsleyfum.
3.
Veiðileyfin verða til sölu á skrifstofu
Húnaþings vestra á Hvammstanga, hjá Ferðaþjónustunni Dæli og Söluskálanum
Hvammstanga. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000-.
4.
Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin verður ekki
takmarkaður, en tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á
umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að benda þeim er fara á veiðisvæði
án leyfis á að nærveru þeirra sé ekki óskað á veiðisvæðinu. Veiðimenn eru
einnig hvattir til að tilkynna slÃk tilfelli til skrifstofu Húnaþings vestra.
5.
Fjallskiladeildir à Húnaþingi vestra hafa
heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án
fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tÃðarfars og umferðar.
Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir þvà að ávallt sé hægt að aka að
veiðisvæði.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem
hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt
gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.