Fréttir | 10. apríl 2014 - kl. 21:21
Samstarfssamningur um eflingu ferðaþjónustu

Í dag var undirritaður í Miðgarði í Skagafirði samstarfssamningur milli Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Ferðamálafélags Vestur Húnavatnssýslu, Ferðamálafélags Austur Húnavatnssýslu og Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði. Undirbúningur samstarfssamningsins hófst í byrjun árs 2013.

 

Markmið samningsins eru að:

  • skapa virkari og öflugri samstarfsvettvang í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
  • skjóta sterkari stoðum undir afkomu og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi vestra
  • greina og kortleggja ímynd, vöruframboð og stöðu greinarinnar i landshlutanum í því skyni að leggja grunn að áframhaldandi uppbyggingu og vexti ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
  • styðja við vöruþróun og markaðs- og kynningarstarf ferðaþjónustufyrirtækja í því skyni að það verði faglegra og árangursríkara

Samstarfssamningurinn er til tveggja ára og felur í sér að ráðinn verður starfsmaður hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem vinna mun að skilgreindum verkefnum með félagasamtökum á vettvangi ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.  Jafnframt munu félög í ferðaþjónustu á svæðinu skipa fagráð sem starfa mun náið með starfsmanninum og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga