Hressir krakkar í Barnabæ. Mynd: Blonduos.is
Hressir krakkar í Barnabæ. Mynd: Blonduos.is
Tilkynningar | 15. apríl 2014 - kl. 17:34
Kökubasar foreldrafélags Barnabæjar

Foreldrafélag leikskólans Barnabæjar stendur að sínum árlega kökubasar í Samkaupum á morgun, miðvikudaginn 16. apríl, klukkan 14 og stendur hann eins lengi og kökur og bakkelsi endast til. Kökubasarinn er helsta fjáröflun foreldrafélagsins sem stendur að ýmis konar kaupum og viðburðum hjá leikskólabörnunum. Til dæmis jólaballi og jólagjöfum, sveitaferð, vorhátíð, útskriftargjöfum, kaupum á leikföngum eða öðru sem gagnast leikskólanum og svo mætti lengi telja.

Vonum við að sem flestir láti sjá sig í Samkaupum og grípi köku með sér fyrir páskana.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga