Tilkynningar | 15. apríl 2014 - kl. 18:13
Bingó í Fellsborg

Laugardaginn 19. apríl heldur kvenfélagið Eining sitt árlega páskabingó í félagsheimilinu Fellsborg Skagaströnd. Bingóið hefst klukkan 13:30. Í hléi verður boðið uppá skúffuköku, djús og kaffi. Fjöldi veglegra vinninga.

Aðgangseyrir:
Fullorðnir 1.000 krónur 1 spjald innifalið
12 ára og yngri 500 krónur 1 spjald innifalið
Aukaspjald fyrir hlé krónur 500
Aukaspjald eftir hlé krónur 300

Gleðilega páska!

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga